15.08.2010

11. ágúst sl. var fyrsta skóflustungan tekin að reiðskemmu hér í
Litlu-Brekku. Húsið er bogahýsi 16 metra breitt og 21 metra langt og
mun koma í beinu framhaldi af gamla bragganum. Katla ehf. mun sjá um
að reisa bygginguna.
11.08.2010

Jæja, þá er Vignir búinn að sýna Prinsessu frá Garði í kynbótadómi.
Hún fékk 7.92 þannig að ekki komst hún yfir áttuna í þetta skiptið.
Við reynum við áttuna síðar :). Annars fórum við um síðustu
helgi austur á Einarsstaði á hestamannamót Þjálfa. Þetta er
fyrsta mót fjölskyldunnar á árinu og líklegast það síðasta líka.
Vignir keppti á Prinsessu, Freyja á Gjafari og Kata á Buska.
Vignir náði 7. sæti inn í A úrslit í B-flokki og hélt því sæti í
úrslitum. Þetta var frumraun Prinsessu á keppnisvellinum
þannig að við erum ákaflega stolt af henni.
28.07.2010

Höfum verið að pússa og mála glugga og þakskegg á íbúðarhúsinu í
blíðunni. Grípum í það á milli annarra verka. Því verður
vonandi lokið fyrir haustið :). Vignir ætlar síðan að sýna
Prinsessu frá Garði á
kynbótasýningu í Skagafirði á morgun.
27.07.2010

Kata og Vignir hafa verið dugleg að ríða út undanfarið. Þau
hafa notið góðs af því síðustu vikuna að nú eru Robbi og Hulda búin að slá og hirða túnin okkar.
Þau hafa nýtt sér rúllurnar og nýslegin
túnin sem æfingasvæði. Góð tilbreyting frá hörðum veginum.
22.07.2010

Við rákum hrossin heim í gær, klipptum hófa og gáfum ormalyf.
Hestunum var síðan sleppt í fjallið þar sem þeir munu una vel næstu
mánuðina. Reiðhrossinn eru þó enn heima við í brúkun. Á
myndinni má sjá Kötu á Gjafari að ríða á undan hestunum til að vísa
veginn upp úr hólfinu í fjallið.
21.07.2010

Nú erum við loksins farin að hreyfa hrossin aftur eftir langa pásu.
En það eru 2-3 vikur síðan að við byrjuðum að hreyfa þau fyrstu
eftir tveggja mánaða hlé. Við höfum ekki farið í neina rekstra enn
sem komið er heldur bara verið að dóla með þau í rólegheitum heima
við. Meðfylgjandi eru myndir af Ými Gustssyni. Ýmir er efnilegur
fimmgangshestur sem er í mikilli framför þessa dagana.
21.07.2010

Við skelltum okkur í ferðalag um síðustu mánaðarmót (í stað
landsmóts). Tókum fellihýsið með okkur og gistum í bæjunum sem
við brunum alltaf í gegnum á leiðinni suður þ.e. Blönduós og
Borgarnes. Við skoðuðum bæina og þræddum öll söfn og
sundlaugar sem við fundum. Við komum einnig við á Hvammstanga
og náðum að taka út Selasetrið og ullarverksmiðjuna. Síðan
brunuðum við til Reykjavíkur og kíktum á menninguna þar líka t.d.
Árbæjarsafnið, Kringluna og Hamborgarafabrikkuna :). Hundurinn
Birta fékk að fara með í ferðina og gekk það ótrúlega vel. Á
myndinni eru Brekkubúar að panta eitthvað sjoppufæði og Birta
ætlar greinilega að panta sér eitthvað ljúffengt.
01.07.2010
Lítið hefur verið að gera í hestamennskunni það sem af er sumars
vegna hestapestarinnar. Þetta hefur því verið óvanalegur
júnímánuður hér á bæ. Stelpurnar hafa ekkert lagt á en hafa
verið duglegar að mæta á frjálsíþróttaæfingar í sveitinni. Nú
er sú yngsta komin með aldur til að mæta og hafa þær því allar þrjár
farið á sömu æfingarnar, einstaklega foreldravænt ;). Á
myndinni má sjá Freyju stökkva langstökk á aldursflokkamóti á
Akureyri. Stefanía Steinsdóttir á Rauðalæk sendi okkur þessa mynd.
23.06.2010

Ný hross á söluskrá. Endilega kíkið.
23.06.2010

Hinir árlegu Brekkuleikar voru haldnir í Litlu Brekku á
þjóðhátíðardaginn. Þar mættu til leiks foreldrar og systkini
Vignis með sínum fylgifiskum og að vanda var keppt í ýmsum
íþróttagreinum eins og stígvélakasti með tvöföldum snúningi og
rólustökki með frjálsri aðferð. Mikið var deilt um úrslitin
enda mikið keppnisfólk þarna á ferð :). Í lok dagskrár var
keppendum boðið upp á grilluð lambalæri. Frábær dagur eins og
alltaf.
22.06.2010

Mátti til að birta hérna tvær myndir af sama hrossinu. Þetta er hún
Pyngja Prinsessu og
Stáladóttir sem nú er orðinn tveggja vetra. Sem folald var hún
heldur lítið fyrir augað blessunin og nánast eins og Skaparinn hafi
verið eitthvað utan við sig vinnunni. En í dag er þetta orðin bara
hin myndarlegasta hryssa.
19. júní 2010

Í gær fórum við með 4 hryssur undir stóðhesta. Röskva fór aftur
undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu en meðfylgjandi myndir eru af
Röskvu og syni hennar u. Gígjari þegar verið var að lesta kerruna.
Dería fór líka undir Gígjar en Garðar pabbi Jónínu heldur henni
þetta árið. Skör frá undir vindótta gæðinginn Glym frá
Innri-Skeljabrekku og Esja-Sól fór undir Hrímni frá Ósi sem fór í
rosa flottan dóm í Borgarnesi nú í vor.
19. júní 2010

Sláttur hófst óvenju snemma hér í Litlu-Brekku þetta árið eða 16.
júní. Róbert og Hulda bændur í Litla-Dunhaga sjá alfarið um
heyskapinn hér á bæ.
16. júní 2010

Pipar frá Litlu-Brekku er stóðhestur á fjórða vetur undan Hróðri frá
Refsstöðum og Prinsessu
frá Litla-Dunhaga. Við gerðum þennan fola vel reiðfæran í vetur
og var jafnvel stefnt á sýningu í vor þó ekkert hafi verið ákveðið.
Hann fór í frí vegna kvefpestar, eins og önnur hross hjá okkur, í
byrjun maí. Við slepptum honum í ungfolahólf í gær en Vignir stökk á
bak áður en við drógum undan honum svo við gætum smellt af honum
nokkrum myndum. Pipar var auðveldur í tamningu og er efnilegur
fimmgangshestur.
15. júní 2010
Það er búið að vera frábært veður síðustu daga.
Kvenpeningurinn á bænum er kominn í sumarfrí og hefur notið þess að
vera heima í blíðunni. Birta litla er mikill félagi stelpnanna
og er mjög skemmtilegt að fylgjast með henni uppgötva allt það sem
fylgir sumrinu t.d. gras, úðara og drullu. Það síðastnefnda er í
miklu uppáhaldi en hún er orðin þaulvön að fara í sturtu.
12. júní 2010
Hún á það til að stela senunni Elva litla Álfsdóttir þegar maður
kíkir á folaldshryssurnar.
11. júní 2010

Skör kastaði 9. júní þessum brúna hesti undan Kletti frá Hvammi. Það
eru því heldur ójöfn kynjahlutföllin hjá okkur núna eða 5-1 fyrir
strákunum. Ein hryssa er eftir að kasta svo ekki er öll von úti enn
að hryssunum fjölgi á bænum. Myndirnar eru teknar að dag af þeim
stutta hjá móður sinni og eitthvað að brölta við ánna.
6. júní 2010

Jæja, þá erum við búin að nefna þrjú folöld í viðbót.
Jarpskjótta Esjudóttirin heitir Elva, rauðblesótti
Hremmsusonurinn Happafengur og brúni hesturinn undan Líf var
nefndur Leiknir.
6. júní 2010

Vignir var sannfærður um að Röskva myndi kasta í nótt og kíkti á
hana bæði klukkan 2 og 6 en ekkert gerðist. Kata og Jónína
voru fyrstar á fætur í morgun og sáu þá að eitthvað var í gangi og
strunsuðu niður í hólf til Röskvu. Þegar þangað var komið var
allt yfirstaðið. Kominn brúnstjörnóttur hestur undan Gígjari
frá Auðsholtshjáleigu. Á fyrri myndinni er stjarni litli 5
mínútna gamall en á þeirri seinni tæplega 2 klukkustunda.
Þetta er fyrsta folaldið hennar Röskvu en hún stendur sig vel í
móðurhlutverkinu.
6. júní 2010

Dería kastaði brúnu hestfolaldi í fyrrinótt. Sá stutti er undan
Eyjólfi frá Feti. Stór og stæðilegur hestur með myndarlegan
frampart eins og folöld undan Deríu eru gjörn á að vera.
30. maí 2010
Fengum tvö folöld í nótt. Líf kastaði brúnu hestfolaldi undan
Eyjólfi frá Feti og Esja Sól kastaði jarpskjóttri hryssu undan Álfi.
Loksins fengum við skjótta litinn frá Álfi :).
29. maí 2010

Ritstjóra síðunnar hefur borist kvörtun vegna fréttar frá 27. maí
2010. Þar kom fram að við hefðum farið með
Eldingu undir Kapal frá Kommu. En hið eina rétta er að Einar
Víðir stórfrændi Vignis var svo almennilegur að fara með hryssuna
fyrir okkur. Rétt skal vera
rétt :). Á meðfylgjandi mynd er Frændi á Freyju frá Reykjum á móti í
Ásbyrgi.
27. maí 2010

Nú er Linda komin aftur til Svíþjóðar. Hennar bíður
skrifstofustarf í heimalandinu í sumar en það verður örugglega
viðbrigði fyrir þessa miklu dýrakonu. Hún á þó tvo
Schäferhunda, hest og ROTTU sem hún
þarf að hugsa um samhliða skrifstofustarfinu. Á myndinni má
sjá Lindu með brot af aloaveraflöskunum sem hún drakk í tíma og
ótíma og enginn annar á heimilinu gat hugsað sér að drekka.
Gangi þér vel í nýju vinnunni Linda og takk fyrir góðan vetur :).
27. maí 2010

Fórum í gær með Eldingu
undir ungfolann Kapal frá
Kommu . Kapall er á húsnotkun fyrir hluthafa hjá Hirti í Hnjúkahlíð
við Blönduós. Elding átti síðast folald 2007 en undan henni er til
Gígjarssonur á þriðja vetur. Hún hefur síðan þá verið
reiðhross/keppnishross á bænum en verður nú sett í ræktunina.
25. maí 2010

Hremmsa kastaði í nótt rauðblesóttum Auðssyni frá Lundum. Litur og
útlit eins og búið var að panta en hann hefði alveg mátt vera hún
:-) enda er þetta þriðji rauðblesótti hesturinn í röð hjá henni
blessaðri. Vignir fór að kíkja á hrossin í morgun um 6 leytið og
hafði með sér myndavél enda nokkuð viss um að Hremmsa væri búinn að
kasta. Þegar að var komið reyndist sá stutti hálf skorðaður
milli þúfna og gat ekki staðið upp hjálparlaust. Hann var feginn
sopanum eftir leguna en virtist hálf ringlaður og vildi ekki hreyfa
sig mikið í fyrstu. Við fórum svo með þau mæðgin heim á tún en þetta
er í fyrsta skipti sem Hremmsa lætur ná sér út á víðavangi en hún
hefur nú ekki verið þekkt fyrir að vera nein kelirófa og heldur sig
helst í minnst 100 metra fjarlægt frá manninum ef hún á þess kost. En tryppin og
hinar folaldsmerarnar voru forvitnar og aðgangsharðar við þann
nýfædda og virtist sem Hremmsu líkað vel við afskiptasemi
mannfólksins að þessu sinni.
22. maí 2010

Jæja þá er fyrsta folald sumarsins fætt hjá okkur. Það var sameign
okkar með Fornhagabændum hún
Brynja frá Árbæ sem
kastaði 19. maí sl. fola undan undan Kvisti frá Skagaströnd. Sá
stutti sem hlotið hefur nafnið Bastían ber skemmtilegan lit en hann
er brúntvístjörnóttur með hvíta leista á öllum fótum :) Meðfylgjandi
myndir tók Anna Guðrún af þeim mæðginum.
5. maí 2010

Sýningunni Æskan og hesturinn, sem halda átti á Sauðárkróki
1. maí, var frestað vegna hestaveikinnar. Í staðinn hélt
Léttir smá sýningu, 30. apríl, á atriðunum sem búið var að æfa stíft
síðustu vikur í reiðhöllinni á Akureyri. Þátttakendurnir buðu
ættingjum og vinum að koma og horfa á. Börnin hittust klukkan 18 og
fóru í spurningaratleik um íslenska hestinn og borðuðu síðan pizzu
saman áður en þau sýndu klukkan 20. Þetta var mjög
skemmtilegur og vel heppnaður viðburður. Yngstu krakkarnir
sýndu leikritið Nýju fötin keisarans en unglingarnir og ungmennin
sýndu atriðin úr sýningunni "Fákar og fjör" frá 17. apríl. Á
fyrstu myndinni má sjá tvo skraddara (Freyju og Köru vinkonu hennar)
en á þeirri næstu má sjá hirðfífl keisarans gera æfingar á hestunum
sínum. Á neðri myndunum má fyrst sjá sigurvegara ratleiksins
Kristínu Ellý, Kötu og Valgerði og síðan er það Bjarney okkar sem
fékk að "keppa" á Gjafari í höllinni þegar hún var orðin tóm.
1. maí 2010

Stilla frá Litlu-Brekku er hryssa á fjórða vetur undan Gígjari frá
Auðsholtshjáleigu og Syrpu frá Ytri-Hofdölum. Við frumtömdum hana í
haust (okt.-nóv.). Hún fékk síðan gott frí og var tekin inn í byrjun
febrúar og fór þá í þjálfun á tamningastöðina í Torfunesi. Vignir
leit við í Torfunesi í gær og Erlingur Ingvarsson tamningamaður
lagði á hana. Stilla er ganggóð og næm hryssa sem tekur tamningu vel.
28. apríl 2010

Sokka til sölu.
19. apríl 2010

Sauðburður hófst í Litlu Brekku í nótt þegar Grána bar tveimur
lömbum. Linda, hin sænska, sem kom aftur til okkar um miðjan
febrúar er sérleg aðstoðarkona í sauðburðinum. Henni er samt
vægast sagt ekkert um kindur gefið en lætur sig hafa það :).
Ekki er laust við að lömbin hafi þó brætt hana í morgun eins og sjá
má á myndinni hér fyrir ofan.
18. apríl 2010

Í gærkvöldi fóru Vignir og Kata með Gjafar og
Prinsessu frá Garði í
TopReiterhöllina til að taka þátt í svokallaðri stórveislu
hestamanna "Fákar og fjör". Kata tók þátt í atriði sem
kallaðist "Ungt og efnilegt" en Vignir var með "kátum körlum" úr
Létti og sýndi einnig Prinsessu í klárhryssuatriði. Á myndunum
hér fyrir ofan er Vignir á Prinsessu.
17. apríl 2010

Það hefur aðeins bæst við dýraflóruna í Litlu Brekku á undanförnum
mánuði. Nýji varðhundurinn okkar, hún Birta, kom til okkar um
miðjan mars. Birta er þriggja og hálfs mánaða hvítur
púðluhundur, fjörug og kát týpa. Hún Freyja okkar fékk síðan fiskabúr og
fiska í tilefni 10 ára afmælisins. Tandri gamli er mjög
áhugasamur um fiskana og er sjálfkjörinn aðstoðarmaður Freyju í
fiskeldinu.
3. apríl 2010

Gjafar er orðinn aðalkeppnishestur fjölskyldunnar og klikkar aldrei
:). Freyja hélt upp á 10. afmælisdaginn með því að keppa á
honum á Líflandsmóti sem haldið var í TOP REITER höllinni 3.
apríl. Mamman klikkaði á myndavélinni en Anna Þóra á Björgum
smellti af Freyju og sendi okkur þesssa mynd.
27. mars 2010

Vignir og Gjafar í 4. sæti á móti í reiðhöllinni á Björgum þann 27.
mars.
21. mars 2010
Rákum stóðið heim í dag og klipptum hófa á nokkrum hrossum. Við
smelltum þessari mynd af Leynd
sem er 2v. Álfsdóttir. Okkur finnst hún einstaklega fríð og
fínleg þessi hryssa.
6. febrúar 2010
Vignir og Freyja löbbuðu út í stóð í dag og höfðu með sér
myndavélina enda veðrið einstaklega fallegt. Smellið á myndirnar til
að sjá þær stærri.

Vinkonurnar Freyja og Litla-Jörp
Freyja og stóðhrossin.

Nei þetta er ekki ísbjarnarhrammur Röskva sæl í sólinni

Pyngja og Röskva
Sokka og Leynd

Hofsáin í klakaböndum
Dalmey 3v. Gígjarsdóttir
19. janúar 2010

Folaldasýning Framfara var haldin á Björgum sl. laugardag. Á Björgum
er risin reiðhöll um 1.000 fermetrar að stærð og var þetta fyrsti
viðburðurinn sem þar fór fram. Við óskum Vidda og Ollu, Simma og
Önnu Þóru og Jolla og Jónínu innilega til hamingju með glæsilega
aðstöðu. Mikil skráning var á sýninguna eða um 80 folöld. Við fórum
með 4 folöld en ekkert þeirra náði verðlaunasætum. Í hryssuflokknum
varð efst brúnskjótt hryssa frá Syðra-Brekkukoti. Stór og myndarleg
hryssa með fallega framgöngu. Á mynd til vinstri eru nágrannar okkar
og eigendur hryssunnar þau Berti og Britta í Syðra-Koti. Í flokki
hesta varð efstur snaggaralegur Gígjarssonur frá Möðrufelli og var
hann jafnframt valinn flottasta folaldið af áhorfendum. Eigandi hans
er Þorbjörn Hreinn (Lúlli) í Möðrufelli. Eigendum og ræktendum efstu
folalda óskum við til hamingju með árangurinn. Nánar má lesa um
úrslitin hér.
19. janúar 2010

Katrin Wilberg frá Svíþjóð sendi okkur þessa mynd af fyrsta folaldi
Snerpu frá Litlu-Brekku.
Myndina tók Annika Ridington.
29. desember 2009

Við erum loksins farin að týna inn hrossin aftur. Ekkert komið á
járn ennþá en þetta fer allt að koma ;-) Það er sannkallaður vetur
hér í Eyjafirði og óvenju mikill jafnfallinn snjór.
Michi í Austurríki sendi
okkur þessa skemmtilegu mynd af henni og Djarfi, nýbúinn á
námskeiðum hjá Einari Öder og Antoni Níelssyni.
23. desember 2009

Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og
gott og farsælt komandi ár. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
28. nóvember 2009

Gaman er að segja frá því að Litla-Brekka var þriðja árið í röð
tilnefnt sem ræktunarbú ársins á svæði HEÞ. Við erum að sjálfsögðu
mjög ánægð með að vera eitt af þeim búum sem tilnefnd eru. Í þetta
sinn voru það Vilberg og Kristín í Kommu sem hlutu titilinn og óskum
við þeim innilega til hamingju með það.
En eins og áður hefur komið fram er lítið um að vera í
hestamennskunni núna á bænum því engin hross eru á járnum og því
ekki farið í útihúsin nema til að sinna kindum, hænum og einni
kanínu. Linda, tamningakonan, er farin heim til Svíþjóðar en
stefnir á að koma aftur til okkar einhvern tímann eftir áramót.
Við notum tímann því eins og venjulega á haustmánuðum að vinna í
íbúðarhúsinu okkar. Vignir er pískaður áfram við að mála stofuna
og þvottahúsið og getur eflaust ekki beðið eftir því að taka hesta á
hús :). Á myndinni má sjá Freyju spila á harmonikkuna
sína í fjósinu hjá Huldu og Robba í Litla-Dunhaga á tónleikum
Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
28. nóvember 2009

Jæja, nú fer kjötið að verða til sem Garðar setti í reykkofann.
Bjarney og Freyja aðstoðuðu afa sinn við verkið en Garðar sér
alfarið um að bæta við taði og kveikja upp. Heimilisfólkið í
Litlu-Brekku getur því gætt sér á dýrindis taðreyktu lambakjöti um
jólin.
16. nóvember 2009

Jæja það er langt síðan eitthvað hefur ratað hér inn á síðuna. Það
eru svo sem rólegheit í hestamennskunni bænum. Við drógum undan og
slepptum öllum hrossum um síðustu mánaðarmót og vorum þá búin að
vera dunda með 4 frumtamningatryppi og nokkur eldri hross. Tryppin
voru orðin reiðfær og líst okkur bara vel á þau. Allt þæg og
meðfærileg hross með lausan gang. Reiknum með að taka 3 af þeim
aftur inn um áramótin. Vignir og Berti nágranni í Syðra-Brekkukoti
skruppu um síðustu helgi vestur í Gauksmýri. Þar var haldinn
aðalfundur félagsskapar um stóðhestefnið Kapal frá Kommu. En þeir
félagar eiga sinn hvorn sinn hvorn hlutinn í honum. Kapall fer á
annan vetur undan
Álfi frá Selfossi og Kjarnorku frá Kommu. Hann er því sammæðra Kappa
og Kasper frá Kommu. Kapall er myndarlegur og vel þroskaður foli og
fylgir hér mynd af gripnum.
23. október 2009

Kíkið endilega á ný uppfærðan lista yfir
"önnur hross í okkar eigu".
9. október 2009
Héldum 9 hryssum í sumar og eru þær sem betur fer allar fengnar skv.
sónarskoðun. Þetta eru:
Röskva frá Hólavatni
Gígjar frá Auðsholtshjáleigu
Líf frá Litlu-Brekku
Eyjólfur frá Feti
Dería frá Engimýri
Eyjólfur frá Feti
Esja Sól frá Litlu-Brekku
Álfur frá Selfossi
Brynja frá Árbæ
Kvistur frá Skagaströnd
Hremmsa frá Borgarhóli
Auður frá Lundum
Ólga frá Engimýri
Blær frá Torfunesi
Lind frá Erpsstöðum
Dynur frá Hvammi
Skör frá Litlu-Brekku
Klettur frá Hvammi
Tveimur af þessum hryssum er haldið í samstarfi við
Önnu og Arnar í Fornhaga þ.e.
Brynju og Lind. En Lind er 1. verðlauna hryssa sem við leigðum
í sumar. Hér
má sjá heimasíðu eigendanna og mynd af hryssunni. Ólga frá Engimýri
er hryssa í eigu Maríu Jespersen á Akureyri en við höldum henni sem
sagt í ár og næsta ár. Ólga er viljug tölthryssa undan Höldi frá
Brún og Pólstjörnu frá Nesi sem er fluggóð 1. verðlauna hryssa. Búið
er að sýna eina hryssu u. Ólgu og er það 1. verðlauna hryssa í
Danmörku.
30. september 2009

Síðasta helgi var notuð í hrossarag og þrif á útihúsum. Við rákum
heim tryppi, folaldsmerar og reiðhross sem komin eru í haustfrí og
gáfum þeim ormalyf og klipptum hófa. Vel hefur gengið með tryppin
sem eru inni núna en það hefur verið heldur kalt og blautt
undanfarna daga og tíminn því verið nýttur í annað en hrossaþjálfun.
Á meðfylgjandi mynd er Linda á baki Ými frá Hítarnesi, 6 vetra
Gustssyni, sem við keyptum seinni part sumars. Ýmir er þægur og
meðfærilegur foli, skrefmikill og alhliðagengur en ekki mikið gerður
ennþá.
24. september 2009

Nú erum við byrjuð að frumtemja tryppin sem eru á fjórða vetur ásamt
því að trimma nokkur hross sem eru til sölu. Tryppin á fjórða eru
fjögur talsins: Hryssa undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og
Syrpu, tvær hryssur undan
Sámi og einn stóðhestur undan Hróðri frá Refsstöðum og
Prinsessu. Erum búin
að dunda í rúma viku með hryssurnar en Pipar (stóðhestinn) tókum við
inn á sunnudag. Hjá okkur er sænsk stúlka, Linda Sohlberg, og
hjálpar hún okkur með hestana. Á meðfylgjandi mynd er Linda að
þjálfa Prýði frá Litlu-Brekku, 5 vetra hryssu undan Hrym frá Hofi og
Prinsessu. Prýði er
skemmtileg unghryssa, viljug og töltgeng og er hún til sölu hjá
okkur.
5. september 2009
Smelltum nokkrum myndum af Þræðingu (5v. Andvaradóttir) í dag. Það
er gaman að vinna með þessa hryssu. Hún er þæg og traust en vel
viljug og alltaf til sama hvert maður beinir henni. Þá eru
gangtegundirnar einstaklega heilsteyptar. Þetta er hryssa sem við
teljum að eigi fullt erindi í keppnisbrautina. Ræktendur eru vinir
okkar í Glæsibæ II þau Rikki og Kristjana. En þau eiga móðurina Þrá
frá Glæsibæ. Þrá hefur gefið býsna góð hross t.d. tvær fyrstu
verðlaunahryssur, Þreyju (8,02) og Þrumu (8,43). Undan Þrá eru til
5 sýndar hryssur. Fjórar þeirra hafa náð 8,5 fyrir tölt og ein hefur
náð 9,0. Þrá er undan Þræði frá Nýjabæ sem var undan Sörla frá
Sauðárkróki og Áshildi frá Áshildarstöðum en þau eru hálfsystkyni u.
Feng frá Eiríksstöðum. Móðir Þráar er Nótt frá Hvassafelli u.
Náttfara frá Ytra-Dalsgerði (Sörlasyni). Þrá er því þónokkuð mikið
skyldleikaræktuð út af Sörla gamla.
Þræðing er auglýst til sölu.
2. september 2009

Árlegt Bjargarmót var haldið um liðna helgi og var það fjölsótt og
skemmtilegt að venju. Kata keppti á Eldingu og Buska, Freyja á
Gjafari, Vignir á Þræðingu og Jónína keppti á Gjöf. Við tókum
nokkrar myndir á mótinu en erum í einhverju brasi með "formatið" á
myndunum svo við bíðum með að birta þær. Þess í stað fylgja hér
myndir af mæðgum ríðandi í Einarsstaðaferðinni.
Við áttum tvær 5 vetra hryssur á síðsumarsýningum sumarsins.
Brynja frá Árbæ var sýnd
á Hellu en lækkaði aðaleinkunn frá þeim dómi sem hún náði 4 vetra.
Hún hækkar reyndar byggingu í 8,24 en lækkar í hæfileikum og endaði
með 8,11 en var með 8,14 í fyrra. Sýnandi var Erlingur Erlingsson.
Svolítil vonbrigði með það en þetta eru lifandi skepnur sem eiga
misgóða daga. Brynja er komin heim fengin við Kvist frá Skagaströnd
og erum við afar kát með það og höfum trú að það geti orðið flott
blanda. Eigendurnir skruppu á bak á henni þegar hún kom heim og urðu
ekki fyrir vonbrigðum. Brynja er sjóðandi viljug , þjál og vel geng
hryssa með mikinn fótaburð. Þræðing frá Glæsibæ II var sýnd á
Akureyri og hlaut 7,70 í byggingu líkt og í vor en hækkaði
umtalsvert í hæfileikum. Fór í 7,94 fyrir hæfileika og 7,84 í
aðaleinkunn. Hún hlaut m.a. 8,5 fyrir tölt, vilja og geðslag
og fegurð í reið og 9,0 fyrir stökk og hægt stökk. Sýnandi var
Bjarni Jónasson.
15.ágúst 2009
Við komum heim á föstudaginn úr túrnum austur en þá höfðu hrossin
okkar ekki komið heim í rúmar tvær vikur. Ferðalagið gekk vel
en þó var óvenju mikið um að laga þurfti járningar á leiðinni. Var
haft á orði að menn væru hættir að svitna við járningarnar. Hrossin voru mun færri á leiðinni heim t.d.
skutluðum við heim Eldingu sem hafði orðið fyrir smá hnjaski og
tveimur hryssum sem stefnt er með í kynbótasýningu.
Reksturinn heim gekk vel. Hrossin voru orðin rólegri og lestuðu sig
fínt á eftir þeim sem undan riðu. Á mynd til vinstri er Simmi bóndi
á Björgum að járna einn ferðahestinn. Fanndís heldur í og Anna Þóra
fylgist með. Á mynd til hægri er Vignir að járna Þræðingu.
13. ágúst 2009

Heimilisfólkið í Litlu-Brekku tók þátt í Einarsstaðamótinu um
síðustu helgi hver með sínu sniði. Freyja, Kata og Vignir fóru
í brautina en Bjarney og Jónína sáu um að hvetja í brekkunni.
Það var algjör bongóblíða á sunnudaginn og því ekki amalegt að sitja
í brekkunni eins og sjá má á Bjarneyju og Brittu á mynd lengst til
hægri. Á fyrstu myndinni má sjá Kötu og
Röskvu frá Hólavatni en
þær enduðu í fimmta sæti í barnaflokki og síðan eru Vignir og Buski
frá Bergsstöðum fyrir miðju að ríða B-úrslit í A-flokki.
6. ágúst 2009


Við riðum í Sörlastaði á mánudaginn með heimilisfólkinu í
Syðra-Brekkukoti, Þrastarhóli, Björgum og Glæsibæ II ásamt nokkrum
Akureyringum. Reksturinn var mjög stór, yfir 90 hross og
u.þ.b. 20 manns ríðandi. Þetta var góður túr sem gekk vel.
Rikki í Glæsibæ II varð fimmtugur þennan dag og Valgeir sonur hans
19 ára. Fjölskyldan bauð því upp á dýrindis grillað nautakjöt
þegar við komum á áfangastaðinn í tilefni dagsins. Við gistum
á Sörlastöðum eina nótt og héldum svo túrnum áfram næsta dag en
ætlunin er að enda á Einarstöðum á fimmtudag.
3. ágúst 2009

Verslunarmannahelginni eyddum við á Sauðárkróki á Unglingalandsmóti.
Katrín Birna keppti þar í frjálsum og á Eldingu í fjórgangi og
tölti. Ekki veitti henni af tveimur aðstoðarmönnum, bílstjóra
(mamma) og hestasveini (pabbi) því greinarnar í hestaíþróttunum og
frjálsunum lentu mikið til á sama tíma og því var brunað á milli
keppnissvæðanna :). Kata og Elding komu heim með silfur og
brons í tölti og fjórgangi. Mótið gekk vel og var mjög
skemmtilegt þó að það hafi verið ansi blautt á laugardaginn. Í
lok mótsins, á sunnudaginn, var haldið lítið frjálsíþróttamót fyrir
10 ára og yngri krakka sem Freyja og Bjarney tóku þátt í.
26. júlí 2009

Undanfarnir dagar hafa verið frekar rólegir og heimilisfólkið í
Litlu Brekku hefur dundað sér við ýmislegt heima við. Meðal
annars smíðuðu Garðar og Vignir kofa úti í garði sem er ætlaður
fyrir allt meiriháttar drullumall. Kofann steyptu þeir niður í
gær og er þegar búið að taka hann í notkun. Fórum annan
rekstrartúr í Glæsibæ II til að halda hrossunum í trimmi fyrir
fyrirhugaðan túr í Einarsstaði í næstu viku. Nú eru hryssurnar
farnar að týnast heim frá stóðhestunum. Sóttum Hremmsu í
fyrradag fengna við Auð frá Lundum og Esja Sól kom heim í dag fengin
við Álfi frá Selfossi :-)
22. júlí 2009

Fórum á dögunum í rekstur með vinafólki okkar í Glæsibæ II og
Þrastarhóli. Rikki í Glæsibæ II kom ríðandi til okkar ásamt
fylgdarliði og við fylgdum honum heim næsta dag. Þriðja daginn
riðum við síðan frá Rikka heim með nágrönnum okkar á Þrastarhóli.
Ætlunin er að reka sömu leið fljótlega en við stefnum á lengri
rekstur í ágúst.
5. júlí 2009

Nú er Lína byrjuð hjá okkur aftur og ætlar að temja hjá okkur í
rúman mánuð. Þessa dagana er því verið að járna og koma öllu í
gang aftur en við höfum lítið sinnt þjálfun á undanförnum vikum.
Við fjárfestum í hringgerði frá Brimco á dögunum. Gerðið hefur
verið í mikilli notkun þann stutta tíma sem það hefur verið uppi.
Ekki spurning að það stórbætir vinnuaðstöðuna.
27. júní 2009

Nú erum við búin að halda
Röskvu undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu. Við höfum ákveðið að
gefa henni frí frá hnakknum næsta vetur en reiknum með að halda svo
áfram með hana eftir það. Gígjar hefur verið að sanna sig í vor sem
öflugur kynbótahestur. Sýnd voru 12 tryppi undan honum og þar af
voru 9 þeirra aðeins 4 vetra gömul. Þrjú 4v. fóru í fyrstu verðlaun.
Myndir frá vinstri: Röskva (Svava Jensdóttir),
Gígjar (H.M.T. Peterse)
27. júní 2009

Skör kastaði 15. júní sl.
brúnni hryssu undan Kappa frá Kommu. Sú stutta hefur hlotið
nafnið Kjarnorka í höfuðið á ömmu sinni (föðurmóður) og er þar með
búið að rjúfa þá hefð hjá okkur að upphafsstafur afkvæmis sé sá sami
og hjá móður. En þar sem öll afkvæmi Syrpu (móður Skarar) byrja á S
fannst okkur rétt að finna annan upphafstaf fyrir afkvæmi Skarar.
Kjarnorka er frekar smá en býsna pattaraleg og fer aðallega um á
tölti. Skör er á leið undir hinn skrefmikla gæðing Klett frá
Hvammi. Myndir frá vinstri: Kjarnorka, Skör, Kappi (AGG).
27. júní 2009

Keyrðum þremur merum í hólf 15. júni sl.
Líf og
Dería fóru í hólf á
Miðgrund í Skagafirði undir Eyjólf frá Feti. Eyjólfur er 5 vetra
brúnskjóttur (sokkóttur) klárhestur undan Þristi frá Feti og Álsey
frá Feti. Hann var sýndur á Sörlastöðum í vor og hlaut prýðisdóm eða
8,11 og þar af 9,0 fyrir tölt og brokk. Móðir hans Álsey
(Orradóttir) er viljug klárhryssa sem hlaut á sínum tíma 9,0 fyrir
tölt og 9,5 fyrir hægt tölt. Þristur hefur svo verið að sanna sig
sem frábær tölthestafaðir. Því fannst okkur spennandi að komast í
þetta blóð. Esja-Sól (8,27)
fór svo undir glæsihestinn Álf frá Selfossi (8,46).
Meðfylgjandi mynd af Eyjólfi og Erlingi Erlings. frá
Sörlastaðasýningunni fengum við senda frá Hinrik Má vini okkar en
hann er formaður hrossaræktardeildarinnar Grána í Akrahreppi sem
hefur umsjón með hestinum.
27. júní 2009

Hremmsa kastaði 10. júní
sl. Afkvæmið reyndist hestur, glannablesóttur, hringeygður með leista
á báðum. Taglið er
svo að mestu skjannahvítt að lit. Faðir er Hróður frá Refsstöðum. Sá
stutti hefur fengið nafnið Hermann. Hremmsa er farin undir
glæsihestinn Auð frá Lundum. Hér fylgja svo nokkra myndir af þeim
mæðginum (hægt er að smella á þær til að sjá þær stærri).
6. júní 2009

Hestfolald (til vinstri á mynd) undan
Deríu frá Engimýri og Sámi
frá Litlu Brekku kom í heiminn aðfaranótt fimmtudagsins 4. júní.
Þetta er stór og myndarlegur hestur sem leikur sér mikið. Merfolaldið undan Prinsessu frá Garði
og Aðli frá Nýjabæ hefur fengið nafnið Atorka. Á myndinni til
hægri er Freyja að athuga með Prinsessu og Atorku.
31. maí
2009

Vignir sýndi Esju Sól og Þræðingu (5v. Andvaradóttir) í
kynbótasýningunni á Króknum sem lauk á föstudag. Esja Sól
hlaut fyrir byggingu 8,26 og fyrir hæfileika 8,27 og 8,27 í
aðaleinkunn. Hún er í raun með mjög jafnar og góðar tölur, einungis
ein tala undir 8,0. Það er bak og lend uppá 7,0. Hún hlaut 9,0 fyrir
fótagerð, hófa, prúðleika og skeið og 8,5 fyrir höfuð, vilja og geð
og fet. Esja Sól var efst í sínum flokki og önnur hæst dæmda hryssa
sýningarinnar. Við ætlum að halda Esju Sól nú í sumar og nú stendur
yfir leit að heppilegum stóðhesti (góð ráð vel þegin :)). Þræðing
hlaut 7,70 fyrir byggingu, 7,49 fyrir hæfileika og 7,57 í
aðaleinkunn. Þræðing á mikið inni í hæfileikum og jafnvel eitthvað í
byggingu en það verður framtíðin að leiða í ljós. Jakob Sigurðsson
sýndi Röskvu í Hafnarfirði í síðustu viku. Hún fékk 8,33 fyrir
byggingu, 7,60 fyrir hæfileika og 7,89 í aðaleinkunn. Hún er því
lítið að bæta dóm frá fyrra ári og virðist hana vanta meira jafnvægi
og styrk til að opna almennilega á meira rými en það á nú vonandi
eftir að koma allt saman. Myndin er tekin nú í kvöld af Esju Sól.
Hægt er að smella á hana til að sjá hana stærri.
26. maí 2009

Jæja þá eru kynbótasýningarnar byrjaðar á fullu og spennan í hámarki
! Djarfur var sýndur í Hafnarfirði í dag og fór í flottan dóm og
hlaut 8,12 í aðaleinkunn. Þar af 9,0 fyrir tölt og vilja og geð og
8,5 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið og hægt stökk. Djarfur hefur
verið í þjálfun hjá Ingu og Tona á Feti en var sýndur af Erlingi í
Langholti. Congratulation Michaela :-)
IS2004165010 Djarfur frá Litlu-Brekku
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 = 8,02
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 7,5 = 8,18
Aðaleinkunn: 8,12
Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Erlingur Erlingsson
24. maí 2009

Katrín Birna og Elding tóku þátt í firmakeppni Léttis sem haldin var
sl. fimmtudag (Uppstigningardag). Það gekk vel hjá þeim stöllum og
sigruðu þær barnaflokkinn. Meðfylgandi myndir tók
Friðgeir Guðmundsson.
24. maí 2009

Um síðustu helgi var haldið Norðurlandsmeistarmótið í hestaíþróttum
á Hlíðarholtsvelli. Vignir fór með þær systur Esju Sól og Eldingu.
Það gekk ágætlega og í fimmgangi náðist 4.-5. sæti. Á meðfylgjandi
mynd eru Vignir og Esja Sól (til vinstri) ásamt Jóni Herkovic á
Formúlu að keppa til úrslita í fimmgangi. Myndina tók Friðgeir
Guðmundsson sem birtir myndir sínar á
heimasíðu Léttis.
21. maí 2009

Þá er fyrsta folaldið loksins komið :-)
Prinsessa frá Garði
kastaði 18. maí jarpri hryssu. Sú stutta er undan Aðli frá Nýjabæ en
hann verður einmitt hér á okkar svæði í sumar hjá
hrossaræktarfélaginu Framfara.

Systurnar í Litlu-Brekku tóku þátt í sýningunni Æskan og
hesturinn þar sem ungir knapar úr Skagafirði, Húnavatnssýslu og
Eyjafirði sýndu listir sínar. Bjarney og Freyja
skiptust á að ríða á Gjafari frá Syðra-Fjalli en Katrín Birna reið á
Eldingu frá Litlu-Brekku. Freyja og Kata hafa verið á vikulegum
æfingum síðustu tvo mánuði fyrir þessa sýningu en Bjarney smellti
sér í teymingarflokkinn eftir að vera búin að fara einu sinni á bak
í vetur. Sumir eru meira fyrir það að sýna en ríða út :).
27. apríl

Við fórum ríðandi á kjörstað ásamt nágrönnum okkar þeim Axel
oddvita á
Þrastarhóli (til hægri á mynd) og Albert í Syðra-Brekkukoti (til
vinstri á mynd). Nú var í fyrsta skipti kosið í Leikhúsinu á
Möðruvöllum og því bara hæfilegur reiðtúr að skreppa ríðandi á
kjörstað. Ólöf á Þrastarhóli kom ekki með okkur í þetta
skiptið þar sem nýtt oddvitaefni er í ofninum :) en hún tók
myndavélina með sér í bílinn og var að senda okkur þessa mynd.
20. apríl 2009

Á laugardagskvöldið fór fram vígsla og hestasýning í reiðhöll Léttis
á Akureyri. Litla-Brekka var þar með ræktunarbússýningu. Í henni
tóku þátt Hinrik Bragason með Sám, Inga María Jónínudóttir með
Djarf, Friðrik Már Sigurðsson með Jaðar, Katrín Birna með Eldingu og
Vignir með Esju Sól. Við vorum ánægð með hvernig til tókst í
frumraun okkar á þessu sviði og viljum nota tækifærið og þakka
knöpunum kærlega fyrir að taka þátt í þessu með okkur. Á mynd til
vinstri eru Kata og Elding í ræktunarbússýningunni en þær tóku líka
þátt í opnunaratriðinum með Léttiskrökkunum. Á myndinni til hægri er
Freyja ásamt nokkrum Léttiskrökkum að sýna hnakkana sem Top Reiter
gaf Létti að þessu tilefni.
20. apríl 2009

Við áttum eftir að klára frásögn af suðurferð. Við heimsóttum
Ingu Mæju og Tona tamningamenn á
Feti en hjá þeim gistum við og vorum í góðu yfirlæti. Inga Mæja
sýndi okkur Djarf frá Litlu-Brekku (5v. Þristssonur) en þau hafa
verið með hann í þjálfun síðan við seldum hann fyrir um ári síðan.
Djarfur er efnilegur klárhestur með tölti og er stefnt á að sýna
hann í vor. Meðfylgjandi mynd er af Ingu og Djarfi.
14. apríl 2009
Í áðurnefndri suðurferð okkar litum við á tvo rauða fola sem við
seldum í fyrra. Þá Hrungni frá Keldunesi (6v.) og
Hróa frá
Litlu-Brekku (5v.). Eigandi folanna er ungur og efnilegur
tamningamaður, Bjarni Sveinsson á Selfossi og sýndi hann okkur báða
hestana í reið. Folarnir eru báðir lofandi og vel unnir. Greinilega
í góðum höndum hjá Bjarna. Á meðfylgjandi mynd er Bjarni á Hróa.
12. apríl 2009

Skruppum á suðurlandið með vinafólki okkar í Fornhaga 2 á
föstudaginn langa og komum heim í gær. Byrjuðum á því að koma
við hjá Jakobi Sigurðssyni í Steinsholti í Leirársveit og kíktum á
Röskvu okkar. Jakob sýndi okkur hana inni í reiðskemmunni og
sýndist okkur þjálfunarferlið vera á góðu róli. Meira af
ferðinni síðar.
9. apríl 2009

Stóri hófaklippingardagurinn var í dag. Við klipptum hófa á tryppum,
folaldshryssum og nokkrum gömlum geldingum sem hafa verið úti í
vetrarfríi alls 32 stk. Garðar (pabbi Jónínu) er mikill áhugamaður
um íslenskar hænur. Hann smíðaði útungunarvél og nú eru komnir 10
sprækir hænuungar, sannkallaðir páskaungar.
5. apríl 2009

Hinrik Bragason keppti á Sámi frá Litlu-Brekku í fimmgangi
Meistaradeildar VÍS sem fram fór í Ölfushöllinni sl.
fimmtudagskvöld. Þeir félagar stóðu sig mjög vel og náðu 2.-3. sæti
í forkeppni en enduðu í 5. sæti í úrslitum. Nánari umfjöllun má sjá
á heimasíðu Hinna og Huldu á
Árbakka, á Hestafréttum og á
seisei.is. Meðfylgjandi mynd tók Fjölnir Þorgeirsson.
1. apríl 2009

Æskan og hesturinn hér norðanlands verður haldið á Akureyri 2. maí
nk. Kata og Freyja eru báðar að æfa atriði í reiðhöllinni með
Léttiskrökkum. Þær æfa einu sinni í viku en eru svo líka á
reiðnámskeiði einu sinni í viku hjá Linu Erikson. Myndina á
auglýsingunni tók húsfreyjan á bænum og er hún af Freyju og
Litlu-Jörp.
1. apríl 2009

Röskva er komin í þjálfun til Jakobs Svavars Sigurðssonar
tamningamanns í Steinsholti og er stefnt á að sýna hana í
kynbótadómi í vor. Látum hér fylgja mynd af föður hennar, Prins frá
Úlfljótsvatni (mynd af Prins birt með
leyfi Snæbjörns á Úlfljótsvatni).
25. mars 2009
Vignir kom við hjá Birni bónda á Hólabaki um daginn og kíkti á
sameignina Spyrnu frá Hólabaki. Spyrna er veturgömul hryssa undan
Sigurdísi (8,23) frá Hólabaki og Álfi (8,46) frá Selfossi.
Sigurdís er móðir hins kunna glæsihests Sigurs frá Hólabaki
sem hefur verið að gera það gott á ísmótum í vetur. Mynd til vinstri
er af Spyrnu. Myndina til hægri tók
Anna
Guðrún í Fornhaga af Sigurdísi og Tryggva Björnssyni.
24. mars 2009

Við höfum selt gæðingshryssuna
Prinsessu frá
Litla-Dunhaga. Kaupendur eru Haukur og Ragnhildur á Selfossi sem
reka hrossabú að
Austurási en kenna hrossarækt sína við Skeiðnes. Það er
óneitanlega mikil eftirsjá í Prinsessu, en undan henni eigum við
nokkurn hóp álitlegra tryppa. Við óskum nýjum eigendum til hamingju
með hryssuna og vonum að hún reynist þeim vel í ræktuninni.
2. mars 2009


Við notuðum góða veðrið um helgina til að smella nokkrum myndum af
Þræðingu 5v. Andvaradóttur. Þræðing er hörku efnileg klárhryssa sem
Lina hefur verið að þjálfa undanfarið.
23. febrúar 2009

Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir viku síðan og eru af þremur
veturgömlum hryssum. Myndin lengst til vinstri er af brúnskjóttri
hryssu, Hendingu u. Kletti frá Hvammi og
Hremmsu frá Borgarhóli.
Miðjumyndin er af Emblu. Hún er undan Andvara frá Ey og
Esju-Sól. Embla er auglýst
til sölu á sölusíðunni. Lengst til hægri er svo mynd af
brúnsjörnóttri hryssu, Dalmey u. Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og
Deríu.
23. febrúar 2009

Christina Lund, eigandi Álfs frá Selfossi, kom hingað í heimsókn í
síðustu viku ásamt tveimur norskum vinkonum sínum. Þær voru á
yfirreið um landið til að skoða Álfsbörn. Þær sendu okkur
meðfylgjandi mynd af Leynd okkar Álfsdóttur (ljósmyndina tók Tine
Johansen).
15. febrúar 2009

Það var góður dagur til útreiða í gær. Sólskin og logn og reiðfærið
alveg frábært. Á meðfylgjandi myndum er Lina að "ríða út" úr
hesthúsinu. Má nú ekki minna vera dyraopið.
15. febrúar 2009

Hér koma nýjar myndir af Leynd (Álfsdóttur) frá Litlu-Brekku. Leynd
tók þátt í úrvalssýningu folalda á svæði HEÞ og lenti þar í öðru
sæti í flokki merfolalda.
10. febrúar 2009

Vignir tók þátt í mótaröð Léttis sem fram fór í reiðhöllinni á
Akureyri sl. föstudagskvöld. Hann mætti með Esju-Sól í 60 m. skeið
og Þráinn í fjórgang. Hann náði 4. sæti í báðum greinum og þar með
rétt til þess að taka þátt í úrslitum sem fara fram síðar. Næstu
greinar sem keppt verður í eru tölt og fimmgangur og er stefnt á að
mæta með jarpa gengið aftur. Mynd til vinstri er af Vigni og
Esju-Sól. Á mynd til hægri færir mótsstjórinn Áslaug Kristjánsdóttir
fimm efstu í skeiðinu viðurkenningu. Lengst til hægri á mynd
eru Þór og Seifur frá Skriðu, en þeir náðu besta tímanum.
4. febrúar 2009

19. janúar sl. byrjaði Lina Erikson að temja hjá okkur. Hún býr á
Akureyri en kemur flesta daga og þjálfar 5-6 hross. Lina er lærður
hestafræðingur og reiðkennari frá Hólaskóla.
18. janúar 2009

Í gær var mikið um að vera í sveitinni. Dagurinn hófst með
folaldasýningu Framfara og var hún haldin hjá Hauki og Þorra á
Ytri-Bægisá. Á folaldasýningunni voru skráð til leiks um 65
folöld og gekk sýningin hratt og vel fyrir sig. Hestaflokkinn
sigraði Álmur Álfssonur frá Skriðu og var hann jafnframt kosinn
glæsilegasta folaldið af áhorfendum. Hryssuflokkinn sigraði folald
frá okkur, Leynd Álfsdóttir.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum. 15 kg. fata af söltuðu
folaldakjöti frá Benna Jensen. Um kvöldið var svo haldin
uppskeruhátíð Framfara á Melum. Mikið stuð og mikið gaman. Nú er
Leynd komin á hús ásamt Líf móður sinni sem verður tamin í vetur.
Við stefnum að því að koma með nýjar myndir af Leynd á næstu dögum.
15. janúar 2009

Erum búin að endurnýja lista yfir ræktunarhryssur í Litlu-Brekku.
Þetta eru hryssur sem flestar eru í folaldseign en einnig hryssur
sem eru í þjálfun núna og stefnt er á að fari í folaldseignir.
Smellið á hrossin
okkar til að skoða nánar.
14. janúar 2009

Nú færist smátt og smátt líf í hestamennskuna í Litlu-Brekku. Við
erum með 8 hross á húsi núna en þar af á Axel nágranni tvö.
Stelpurnar voru duglegar að skreppa á hestbak í jólafríinu. Kata
reið á Þráni og Freyja á Gjafari. Hross á húsi núna eru eftirtalin:
Þráinn frá Þinghóli, Gjafar frá Syðra-Fjalli, Þræðing 5v.
(Andvaradóttir) frá Glæsibæ, Röskva 5v. (Prinsdóttir) frá Hólavatni,
Hildur 4v. (Sámsdóttir) frá Litlu-Brekku og Saga 4v. (Gígjarsdóttir)
frá Hólabaki. Meðfylgjandi mynd er af Vigni og Sögu.
14. janúar
2009

Brynja frá Árbæ er nú farin í þjálfun til Erlings og Viðju í
Langholti. Stefnt er á að sýna hana aftur í kynbótadómi í vor.
10. janúar 2009

Uppgjör 2008 :-)
Síðast liðið ár var okkar besta ár í hrossaræktinni. Við sýndum 6
hross í kynbótadómi og þar af 4 frá Litlu-Brekku. Þetta voru Sámur
(8,22), Skör (8,02), Elding (7,85) og Esja-Sól (8,21) öll frá
Litlu-Brekku. Meðaleinkunn þeirra var 8,08. Einnig eigum við helming
í tveimur 4v. hryssum sem sýndar voru á árinu: Prinsessu frá Garði
(7,98) og Brynju frá Árbæ (8,14). Litla-Brekka var annað árið í röð
tilnefnt sem ræktunarbú ársins á svæði HEÞ og erum við ákaflega
stolt af því. Á meðfylgjandi mynd er Vignir að taka við blómvendi á
haustfundi HEÞ ásamt öðrum sem tilnefndir voru. Fyrir valinu varð
Syðra-Garðshorn í Svarfaðardal.
Þá voru Vignir, Kata og Freyja býsna ötul á keppnisvellinum og gekk
það upp og niður eins og gengur en náðu
oft ágætis árangri. Vignir var tilnefndur sem knapi ársins hjá Létti en
Þorbjörn Hreinn Matthíasson hreppti verðskuldað titilinn. Tamningar
og sala gengu afar vel. Hjá okkur var dönsk stúlka, Nanett Kvist, og
á hún stóran þátt í því hversu vel gekk við tamningar og sölu. Enda
bráðlagin og dugleg stelpa. Hún starfaði hjá okkur með hléum frá
október 2007 - júni 2008. Á meðfylgandi mynd er Nanett á Kol frá
Syðri-Ey sem er einn af þeim hestum sem við seldum á sl. ári.
10. janúar 2009
Hér kemur síðbúin nýjárskveðja frá fjölskyldunni í Litlu-Brekku. Við
þökkum fyrir góð samskipti á liðnu ári og óskum ykkur farsældar á
því nýja. Meðfylgjandi er mynd sem húsfreyjan tók yfir Akureyri um
miðnætti á gamlárskvöld. Við skruppum yfir í Vaðlaheiði til að
fylgjast með skothríðinni og njóta útsýnissins.
23. nóvember 2008

Þetta er mynd af óskýrðu merfolaldi sem við eigum í félagi við Björn
bónda á Hólabaki. Hryssan er undan glæsihrossunum Sigurdísi frá
Hólabaki (8,23) og Álfi frá Selfossi (8,46). Við höfum ekki enn séð
hryssuna en Björn sendi okkur þessa mynd í dag.
27. október 2008

Við héldum 6 hryssum undir stóðhesta í sumar. 5 reyndust fengnar
skv. sónarskoðun en ein var geld. Mynd til vinstri er af Skör okkar
en hún er fylfull við glæsihestinum Kappa frá Kommu (mynd til hægri
Kappi/AGG)
Eftirtaldar hryssur er fengnar.
Hryssa:
Stóðhestur:
Hremmsa frá Borgarhóli -
Hróður frá Refsstöðum
Dería frá Engimýri - Sámur frá Litlu-Brekku
Prinsessa frá Garði - Aðall frá Nýjabæ
Skör frá Litlu-Brekku - Kappi frá Kommu
Prinsessa frá Litla-Dunhaga
- Sveinn-Hervar frá
Þúfu
21. október 2008

Það er heldur rólegt yfir hestamennskunni í Litlu-Brekku þessa
dagana. Fjölskyldan brá sér til Mallorca í vikutíma og hafði það
huggulegt í sólinni. Með okkur í för voru Anna Þóra og Simmi á
Björgum ásamt börnum. Alveg frábær ferð með góðum ferðafélögum.
Allir eru nú komnir á fullt í vinnu og skóla og aukatími notaður í
ýmis haustverk og framkvæmdir við íbúðarhúsið. Nú er lilla-bleika
innréttingin í eldhúsinu orðin hvít þannig að húsfreyjan fékk nú
loksins sínu framgengt eftir níu ára baráttu.
Við stefnum á að taka hross til þjálfunar í byrjun desember og
tíminn þangað til verður nýttur til að ditta svolítið meira að
íbúðarhúsinu.
Það gleymdist alveg að segja frá því hér á síðunni að Prinsessa kastaði jarpri
hryssu um miðjan ágúst sl. Hefur hún fengið nafnið Pyngja. Við fórum
með Prinsessu og Líf í sónarskoðun í dag. Prinsessa var hjá
Sveini-Hervari og var staðfest fyl í henni. Líf var hjá Tenór frá
Túnsbergi en reyndist því miður geld. Það hefur þó þann kost að nú
verður hægt að temja merina en það "gleymdist" víst um árið. Hún var
gerð reiðfær á fjórða vetur en lenti svo í folaldseignum hjá okkur
og er búin að gefa okkur 3 hryssur, 2 undan Sámi frá Litlu-Brekku
og eina undan Álfi frá Selfossi.
21. september 2008

Svava Jensdóttir sendi okkur
þessar flottu myndir af Röskvu og móður hennar, Veru frá Hólavatni
(th).
17.september 2008

Nýverið keyptum við hryssuna Röskvu frá Hólavatni. Röskva er 4
vetra, bráðefnileg hryssa, rauðskjótt að lit. Hún er undan Prins frá
Úlfljótsvatni og Veru frá Hólavatni sem er ósýnd hryssa undan Magna
frá Búlandi (u. Sörla Búlandi). Röskva var sýnd í sumar og hlaut
8,31 fyrir sköpulag, 7,44 fyrir hæfileika og 7,81 í aðaleinkunn.
Fyrri eigandi hennar er Kristófer Helgi Pálssson á Hvolsvelli.
Kristófer og kona hans Svava Jensdóttir halda úti heimasíðu um sína
hrossarækt á slóðinni
www.holavatn.com. Myndina til hægri tók Svava. Myndina til
vinstri tók Jens Einarsson á Héraðssýningu á Gaddstaðaflötum sl.
vor. Knapi er Elvar Þormarsson. Jens skrifar einnig skemmtilega
frétt um þessa hryssu á heimasíðu sinni
www.seisei.is .
Fréttina má nálgast hér. Við hlökkum til að taka Röskvu inn til
þjálfunar í vetur og stefnum á að sýna hana í vor. Hægt er að
smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
10. september 2008

Djarfur frá Litlu-Brekku hefur fengið heimasíðu. Þar má sjá myndir
og ýmsar upplýsingar um klárinn á þýsku. Djarfur er 4v. stóðhestur
u. Þristi frá Feti og Deríu frá Engimýri. Hann er enn staðsettur á
Íslandi og er stefnt á að sýna hann að vori. Inga og Toni í
Syðra-Holti, nú tamningamenn á Feti eru með klárinn í þjálfun.
Eigandi Djarfs er Michaela Schwandl frá Austurríki. Kíkið endilega á
síðuna, slóðin er
www.djarfur.at.tf
2. september 2008


Meðfylgjandi myndir eru af Sóma Syrpusyni og fósturfjölskyldu hans.
Dería gekk Sóma í móðurstað og ganga því tvö
folöld undir henni. Það hefur gengið vel að venja þau saman. Við
höfðum þau inni fyrstu sólarhringana, tókum bæði folöldin undan
henni og hleyptum þeim báðum í einu til hennar með nokkuð reglulegu
millibili allan sólarhringinn. Dería tók þessu vel frá upphafi og
leið ekki á löngu þar til hún virtist sætta sig við þetta. Sómi
litli fylgir fóstru sinni hvert fótmál og er duglegur að bjarga sér.
31. ágúst 2008

Vignir sýndi Esju Sól á Síðsumarsýningu á Sauðárkróki í vikunni. Hún
hlaut flottan dóm: Sköpulag 8,24 og hæfileikar 8,18, Aðaleinkunn
8,21. Við erum að sjálfsögðu stolt af Esju Sól og þessari frumraun
hennar á kynbótabrautinni. Hún verður í þjálfun aftur næsta vetur og
er stefnt á kynbótasýningu næsta vor. Esja Sól er 6v. undan Núma frá
Þóroddsstöðum og Elju frá Ytri Hofdölum. Hún
var tamin lítilsháttar á fjórða vetur, átti svo folald í fyrra og
var tekinn inn eftir áramót. Undan henni er til veturgömul
Andvaradóttir. Meðfylgjandi mynd er af heimasíðu Léttis en hún var
tekin á Einarsstaðamótinu í 100 metra skeiði þar sem hún lenti í 3.
sæti með tímann 8,54 sek.
IS2002265005 Esja Sól frá Litlu-Brekku
Litur: 3400 Jarpur/rauð- einlitt
Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 6,5 - 8,5 - 9,0 - 7,5 - 8,5 - 9,0 = 8,24
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 = 8,18
Aðaleinkunn: 8,21
Hægt tölt: 7,5 Hægt stökk: 5,0
31.
ágúst 2008

Tókum þátt í þremur mótum í ágústmánuði. Vignir fór með
hálfsysturnar Esju Sól og Eldingu til Dalvíkur á opið íþróttamót.
Hann náði úrslitasætum í tölti, fjórgangi og fimmgangi og í
gæðingaskeiði fóru hann og Esja Sól heim með gullið.
Helgina 9.-10. ágúst fór fjölskyldan til Einarsstaða með fellihýsið
þar sem Vignir, Kata og Freyja tóku þátt í keppni. Þeim gekk
öllum ágætlega en það sem stóð líklega upp úr eftir helgina var að Freyja (8
ára) og Litla-Jörp (25 vetra) komust inn í úrslit. Þær enduðu
í 7. sæti og Kata í því 3.
Bjargarmótið var haldið um síðustu helgi og voru Freyja og Kata
fulltrúar Litlu-Brekku á því móti. Freyja mætti að sjálfsögðu
á Litlu-Jörp en Kata með Eldingu og gekk þeim báðum vel. Kata og
Elding eru að ná vel saman þannig að Gjafar varð eftir heima í þetta
skiptið. Þetta var að vanda mjög skemmtilegt mót þar sem
sveitungar og félagar úr Framfara komu saman og áttu góðan dag.
Vikuna áður var haldið reiðnámskeið á vegum Framfara sem stelpurnar
tóku þátt í en mótið var nokkurs konar endapunktur á því.
Til vinstri er Freyja og Litla-Jörp á Einarsstöðum og Kata og Elding
á Bjargarmóti t.h.
31. ágúst 2008

Hún Syrpa okkar fórst 23. ágúst sl. Hún var
í hólfi hjá Kappa frá Kommu og hafði fallið ofan í skurð. Dýralæknir
telur að hún hafi hálsbrotnað við fallið. Fráfall hennar er
okkur mikill missir enda var hún í sérstöku uppáhaldi hjá
fjölskyldunni. Syrpa var aðalkeppnishross Vignis til nokkura ára og
áttu þau farsælan feril að baki. Hún hafði einnig sannað sig sem
kynbótahryssa. Í sumar voru sýnd tvö hross undan henni og fóru þau
bæði í fyrstu verðlaun. Sámur (8,22) og Skör (8,02). Syrpa var
nýköstuð rauðtvístjörnóttum hesti undan Mola frá Skriðu. Sá hefur
fengið nafnið Sómi. Hann gengur nú undir annari folaldshryssu og
gengur vel að venja hann undir. Auk Sóma eigum við tvö ótamin tryppi
undan henni: Spóa 3v. undan Ofsa frá Brún og Stillu 2v. undan
Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.
20. ágúst 2008
Brynja hækkaði stökk úr 8,0 í 8,5 í yfirliti sl. mánudag. Hún fór
því í 8,18 fyrir hæfileika og 8,14 í aðaleinkun. Prinsessa hækkaði
ekki og endaði því með 7,98.
17. ágúst 2008

Þráinn frá Litla-Dal til sölu. Kíkið á
sölusíðu.
16. ágúst 2008


Við eigum tvær 4 vetra hryssur, Brynju frá Árbæ og Prinsessu frá
Garði, á síðsumarsýningunni á Hellu sem fram fer þessa dagana. Við
brugðum undir okkur betri fætinum og skruppum suður til að sjá þær í
sýningunni. Ferðafélagar okkar voru þau Anna Guðrún og Arnar í
Fornhaga, sem eiga Brynju frá Árbæ með okkur. Brynja (brúna hryssan
á myndunum) fór í 8,12 í aðaleinkunn og erum við eigendurnir í
skýjunum með þennan árangur. Prinsessa, (jarpa hryssan á myndunum) sem við eigum í félagi við
Guðmund og Enrice í Garði, fékk einnig mjög góðan dóm 7,98. Þessar
hryssur standa nú tvær efstar fyrir yfirlit sem fram fer á mánudag.
Sýnandi er Erlingur Erlingsson. Myndirnar tók Anna Guðrún.
IS2004286939 Brynja frá Árbæ
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,5 - 8,0 = 8,08
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 6,5 - 8,0 - 9,0 - 8,5 - 6,0 = 8,14
Aðaleinkunn: 8,12 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
IS2004266616 Prinsessa frá Garði
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 7,96
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 6,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,0 = 7,99
Aðaleinkunn: 7,98 Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 7,5
13. ágúst 2008

Fyrir um viku síðan rákum við tryppin heim, gáfum ormalyf, klipptum
hófa og rákum svo stóðið upp í fjall. Við notuðum tækifærið og tókum
myndir af nokkrum tryppanna. Hér fylgja myndir af fjórum unghryssum.
Á fyrstu myndinni (uppi til vinstri) er Embla IS2007265005 frá
Litlu-Brekku. Embla er jörp veturgömul hryssa undan Andvara frá Ey
og Esju-Sól frá Litlu-Brekku. Á miðjumyndinni er Saga IS2005256277
frá Hólabaki. Hún er 3ja vetra undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu
og Sigurdísi frá Hólabaki. Lengst til hægri er Lygna IS2006265006
frá Litlu-Brekku, 2ja vetra undan Sámi frá Litlu-Brekku og Líf frá
Litlu-Brekku. Á neðstu myndinni er veturgömul hryssa, Þöll IS2007258736
frá Hjaltastaðahvammi. Hún er undan Þokka frá Kýrholti og Glennu frá
Syðra-Skörðugili.
31. júlí 2008


Við höfun nú selt stóðhestinn Sám frá Litlu-Brekku. Kaupandi er
Hestvit ehf. sem er fyrirtæki Hinriks Bragasonar og Huldu
Gústafsdóttur í Árbakka. Sámur er 6 vetra gamall. Hann hlaut í vor
8,22 í aðaleinkunn í kynbótadómi og hefur verið að sanna sig sem
keppnishestur. Hann hefur nú þegar náð 7,07 í einkunn í fimmgangi og
8,34 í A-flokki. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með hestinn.
Meðfylgjandi myndir af Vigni og Sámi tók
Anna Guðrún í Fornhaga á úrtöku Léttis fyrir Landsmót.
28.júlí 2008

Á laugardaginn keyrðum við fjögur hross á Kaupangsbakka og riðum
þaðan í Bjarg til ömmu Jónínu. Þar voru afkomendur hennar
saman komnir til að grilla og hafa notalega kvöldstund saman.
Kveikt var á heimatilbúnum kyndlum, Ævar þandi nikkuna og ýmislegt
brallað.
28.júlí 2008

Á fimmtudaginn riðum við í Baugasel í Barkárdal með vinafólki okkar
í Glæsibæ og á Björgum og þeirra fylgifiskum :). Við reynum að
komast að minnsta kosti einu sinni á ári í Baugasel og ekki brást
veðurblíðan frekar en í fyrri ferðum. Við gistum þar eina nótt og
riðum svo aftur heim um hádegi á föstudag. Fleiri
myndir úr ferðinni hér.
20. júlí 2008
Við höfum verið afspyrnu löt við að setja inn efni á heimasíðuna
undanfarið. Hér koma helstu hestafréttir síðustu vikna...Smellið á
myndir til að sjá þær stærri...

Stelpurnar tóku þátt í "Æskulýðsmóti Norðurlands" sem haldið var á
Melgerðismelum í blíðskaparveðri um helgina. Á laugardeginum var
keppt í þrautabraut auk þess sem farin var hópreið um svæðið. Í dag
sunnudag var svo keppt í pollaflokki, barnaflokki og unglingaflokki
með firmakeppnisformi. Á myndinni lengst til vinstri er Bjarney á
Litlu-Jörp að keppa í sérstökum "prinsessuflokki" sem var reyndar
utan dagskrár. Fyrir miðju er Kata að keppa í barnaflokki á
Eldingu
frá Litlu-Brekku. Þær stöllur urðu í fyrsta sæti. Á mynd til hægri
er Freyja að bregða á leik með Litlu-Jörp.

Kata og Gjafar stóðu sig vel í barnaflokki á Landsmótinu. Þau hlutu
í einkunn 8,15 og voru tveimur sætum frá því að komast í milliriðil.
Ekki gekk sem skildi hjá karli föður hennar með þá Þráinn og Sám og
eru umræður um það við eldhúsborðið hvort ekki sé rétt að sá gamli
fari að leggja hvítu reiðbuxunum og einbeiti sér heldur að
hestasveinshlutverkinu :-)

25. júní kastaði Líf fallegri brúnni hryssu undan Álfi frá Selfossi.
Sú litla hefur fengið nafnið Leynd. Líf fór í hólf til Tenórs frá
Túnsbergi.

Elding fór í kynbótadóm á Dalvík og hækkaði hæfileikaeinkunn
umtalsvert frá því á Sauðárkrókssýningunni. Hún er klárhryssa og
hlaut 8,5 fyrir tölt, hægt tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í
reið. 8,0 fyrir brokk og fet og 9,0 fyrir hægt stökk. 7,90 fyrir
hæfileika og 7,85 í aðaleinkunn. Knapi á Eldingu var Tryggvi
Björnsson á Blönduósi. Myndirnar tók Anna Guðrún í Fornhaga.
26. júní 2008

Nú erum við að undirbúa okkur fyrir Landsmótið á Gaddstaðaflötum.
Þrjú hross frá Litlu-Brekku búinu fengu fararleyfi á Landsmót fyrir
hönd Léttis. Vignir fer með Sám í A-flokk og Þráinn í B-flokk. Kata
fer með Gjafar í barnaflokkinn. Á meðfylgjandi myndum eru Kata og
Freyja að skola rykið af keppnishrossunum.
25. júní 2008

Ný hross á söluskrá. Kíkið endilega á
Hross til sölu.
24.júní 2008

Hremmsa kastaði rauðblesóttu hestfolaldi undan Þóroddi frá
Þóroddstöðum þann 20. júní. Hann hefur fengið nafnið Haukur.
Freyja átti hugmyndina að þeirri nafngift :). Dagsgamall fór
hann vestur í Skagafjörð en á föstudagskvöldið keyrði Vignir Hremmsu
undir Hróð frá Refsstöðum.
10.júní 2008

Hestfolaldið undan Deríu og Klerki hefur verið nefnt Dani. Það
þótti Nanett, dönsku tamningakonunni, ekki leiðinlegt.
9. júní 2008

Aðfaranótt sunnudagsins kastaði Dería brúnu hestfolaldi undan Klerki
frá Bjarnanesi. Mæðgurnar í Litlu Brekku skunduðu með
myndavélina upp í fjallhólfið til að ná myndum af nýköstuðu
folaldinu en einn ferðafélaginn þverneitaði að fara yfir ána og því
voru teknar myndir af ýmsu öðru í ferðinni í staðinn. Sumir
létu mynda sig við að hoppa yfir eða hinu megin við. Aðrir
vildu frekar láta taka mynd af sér RÉTTU megin við með systrum sínum og Koli sem
stillti sér upp eins og hinir. Fljótlega verður farinn annar
leiðangur til að mynda folaldið :).
8. júní 2008
  
Á föstudagskvöldið síðastliðið var haldið töltmót á Björgum.
Mótið var kolólöglegt í alla staði og þeim mun skemmtilegra.
Katrín Birna og Vignir tóku þátt, Vignir á Eldingu (t.v.) og Þráni
frá Þinghóli (fyrir miðju) og Kata á Gjafari (t.h.). Þeim gekk
bara vel en Vignir var efstur eftir forkeppni á Þráni og endaði
einnig efstur. Frúin mætti með myndavélina, nýbúin á
ljósmyndanámskeiði, undir mikilli pressu um að standa sig við
myndatökuna.
5. júní 2008

Fórum með 3 hross í kynbótadóm á Sauðárkróki í síðustu viku. Vignir
sýndi Sám og Eldingu en Bjarni Jónasson sýndi Skör. Sámur hlaut 8,22
í aðaleinkunn, 8,09 fyrir sköpulag og 8,30 fyrir hæfileika. Skör er 5
vetra hryssa, sammæðra Sámi. Hún er efnileg klárhryssa hlaut í
aðaleinkunn 8,02 þar af 8,24 fyrir byggingu og 7,88 fyrir hæfileika.
Elding hlaut í aðaleinkunn 7,66 þar af 7,78 fyrir byggingu og 7,58
fyrir hæfileika. Þetta var því ánægjuleg útkoma fyrir okkur. Sámur
er að hækka um 20 kommur frá síðasta ári og Skör smellir sér í
fyrstu verðlaun á sinni fyrstu sýningu. Við tókum því miður engar
myndir á sýningunni en hér fylgja nokkar gamlar. Sámur og Vignir
lengst til vinstri, þá Skör og Bergur, sem þjálfaði hana í vetur og
th. Elding og Nanett.
21. maí 2008
Kata og Freyja tóku þátt í Goðamóti Léttis sem haldið var um síðustu
helgi. Kata keppti á Gjafari í fjórgangi og tölti barna og Freyja
keppti á Litlu-Jörp í pollaflokki. Kata varð í öðru sæti í fjórgangi
og fimmta sæti í tölti. Meðfylgjandi myndir tók Anna Guðrún af Kötu
og Gjafari og vinkonunum Pálínu, Silvíu og Freyju.
15. maí 2008

Vignir og Nanett tóku þátt í vormóti Léttis sem haldið var annan í
hvítasunnu. Nanett fór með Eldingu og Vignir fór með Sám og nafnana
Þráinn frá Þinghóli og Þráinn frá Litla-Dal. Vignir og Sámur náðu
öðru sæti í fimmgangi, á eftir Degi frá Strandarhöfði, með einkunina
6,37 í forkeppni og 6,71 í úrslitum. Meðfylgjandi myndir tók
Anna Guðrún af þeim félögum. Smellið á
myndir til að sjá þær stærri.
8. maí 2008

Þetta er nýtt merki hrossaræktarbúsins í Litlu-Brekku. Hönnuður
merkisins er Hugrún Ívarsdóttir
á Akureyri. Huggu er margt til lista lagt eins og sjá má á
heimasíðu hennar, www.merkilegt.is
Þessi léttstígi og fallegi gæðingur verður náttúrulega
ræktunarmarkmið búsins, engin spurning :-)
7. maí 2008

Póstur til sölu. Sjá nánar hér.
6. maí 2008

Meðfylgjandi myndir eru teknar í gær af Andvaradótturinni Þræðingu
frá Glæsibæ II. Þræðing er á fjórða vetur og hefur Nanett verið að
temja hana í vetur. Hún er nú farin að stíga tölt á hægri ferð og
sýnir falleg tilþrif. Spennandi hestefni, að okkar mati allavega :-)
Smellið á myndir til að sjá þær stærri.
5. maí 2008

Fjölskyldan varði laugardeginum í Skagafirði. Þar fór fram sýningin
"Æskan og hesturinn" í reiðhöllinnin á Sauðárkróki. Þarna komu saman
krakkar frá nokkrum hestamannafélögum á Norðurlandi og voru með æfð
atriði af ýmsum toga, ss. sirkus, jafnvægisatriði, boðhlaup,
munsturreið ofl. Kata og Freyja tóku þátt í sýningaratriðum Léttis.
Enda hafa verið stífar æfingar hjá þeim í reiðhöllinni á Akureyri.
Hér má sjá fleiri myndir frá þessum
skemmtilega degi.
2. maí 2008

Litla-Brekka tekur þátt í gæðastýrðri hrossarækt.
Sjá nánar hér.
12. apríl 2008

Fórum í hrossarekstur inn Hörgárdal í gær með Bjargarbændum. Við
erum búin að fara nokkra svona túra í vetur, góð tilbreyting fyrir
hesta og menn.
30. mars

Það hefur viðrað vel til útreiða undanfarið. Prinsessa, 4v.
Orradóttir, (mynd lengst til vinstri) er að verða reiðfær og búið að
fara nokkrum sinnum út veg á henni. Hún er þæg og meðfærileg,
skemmtilegt og jákvætt tryppi. Hún velur brokkið en hefur þó sýnt að
ganglagið er opið og ábyggilega stutt í töltið. Á miðjumyndinni er
Hrói frá Litlu-Brekku. Hrói er foli á fjórða vetur sem við tókum inn
í byrjun mars. Hann er undan Blæ frá Múla (Andvarasyni) og
Hremmsu frá Borgarhóli og er tryppi nr. 2
sem tamið er undan þeirri hryssu. Hann er nú þessa dagana að taka
sín fyrstu skref með knapa á baki. Á myndinni lengst til hægri er
Bjarney að prófa Litlu-Jörp, reiðhrossið hennar Freyju.
28. mars 2008
Um síðustu helgi var haldið Stjörnutölt í skautahöllinni á Akureyri.
Vignir og Nanett tóku að sér undanreið fyrir töltkeppnina. Vignir
sýndi einnig Sám í stóðhestakynningu. Á meðfylgjandi myndum er frá
vinstri talið Nanett og Elding, Vignir og Þráinn, Vignir og Sámur.
Jónína tók myndina í miðjunni en
Anna Guðrún hinar tvær.
17. mars 2008

Skruppum suður á land um helgina til þess meðal annars að kíkja á
hryssuna okkar Brynju frá Árbæ sem er í tamningu hjá Erlingi
Erlingssyni í Langholti. Virkilega álitleg hryssa þar á ferð. Með
okkur á ferð voru Anna Guðrún og Arnar í
Fornhaga sem eiga hryssuna með okkur. Anna tók meðfylgjandi
myndir af Brynju og Erlingi.
10. mars 2008

Nanett og Vignir tóku þátt í ÍSFIMI sem Þorbjörn Matthíasson og
Inga Bára Ingólfsdóttir stóðu fyrir á Leirutjörninni um helgina.
Nanett sýndi Eldingu og Gjafar í tölti og Vignir mætti með Þráinn
frá Þinghóli í
tölt, Sám í stóðhestasýningu og Þráinn frá Litla-Dal í skeið. Þráinn
frá Litla-Dal náði fyrsta sæti í 100m skeiði. Vel
heppnað og skemmtilegt mót. Anna Guðrún tók meðfylgjandi myndir af
Nanett og Eldingu og Vigni og Þráni.
8. mars 2008

Meðfylgjandi myndir eru af Djarfi frá Litlu-Brekku. Djarfur er
stóðhestur á fjórða vetur undan Þristi frá Feti og Deríu frá
Engimýri. Folinn er einstaklega ljúfur og meðfærilegur. Aðeins er
farið að þreifa fyrir tölti og virðist það liggja opið fyrir
honum. Hér má sjá fleiri myndir af Djarfi sem
teknar eru í dag.
7. mars 2008

Skruppum í Skagafjörðinn í dag og kíktum í heimsókn til Bergs bónda
á Narfastöðum. Hann er að þjálfa fyrir okkur hryssuna Skör frá
Litlu-Brekku. Skör er á fimmta vetri undan Nagla frá Þúfu og Syrpu
frá Ytri-Hofdölum. Hryssan verður áfram í þjálfun hjá Bergi og er
stefnt á að sýna hana í kynbótadómi í vor.
5. mars 2008

Nýtt hross á söluskrá, Perla frá Litlu-Brekku. Kíkið á
Hross til sölu.
2. mars 2008
Rákum heim stóðið í dag, klipptum hófa og lúsaböðuðum.
18.2.2007

Vignir og Nanett tóku þátt í Bautatölti í Skautahöllinni á Akureyri
um liðna helgi. Vignir sýndi Þráinn og Sám en Nanett mætti með
Gjafar. Vel skipulagt og skemmtilegt mót. Meðfylgjandi myndir tók
Anna Guðrún. Lengst til vinstri eru Þráinn
og Vignir, þá Sámur og Vignir og lengst til hægri er Nanett á
Gjafari.
4.2.2008

Það ríkir sannkallaður vetur á Norðurlandi þessa dagana og langt
síðan við höfum séð svona mikinn snjó. Nú er Nanett komin aftur til
okkar og hrossunum fjölgar smátt og smátt aftur í hesthúsinu. Rikki
í Glæsibæ kom um síðustu helgi og járnaði 5 stykki svo nú eru 11
hross komin á járn. Á meðfylgjandi mynd er Nanett að hringteyma
Prinsessu frá Garði, undan Orra frá Þúfu og Menju (Gustsdóttur) frá
Garði. Prinsessa er 4 vetra hryssa (fædd 2004) sem við eigum í
félagi með Guðmundi og Enrice bændum í Garði í Aðaldal.
24.1.2008

Elding er nú komin á járn eftir nærri
tveggja ára hlé. Skeifnaspretturinn var farinn í dag og voru þessar
myndir teknar af því tilfefni.
23.1.2008

Þær stöllur Freyja og Litla-Jörp hafa verið nokkuð iðnar við
útreiðar á nýju ári.
23.1.2008

Korka er nú seld og lagði af stað til Danmerkur í dag.
23.1.2008

12. janúar sl. var haldin folaldasýning Framfara á Björgum í
Hörgárdal og uppskeruhátíð félagsins um kvöldið. Við fórum með
4 folöld en ekkert þeirra náði verðlaunasæti. Aftur á móti átti
Sámur tvö afkvæmi í úrslitum, þau Krumma frá Glæsibæ II og Sóleyju
frá Litla-Dunhaga. Sóley varð efst í flokki merfolalda. Á myndinni
til hægri eru kampakátir hrossaræktendur með verðlaun sín. Talið frá
vinstri Arnar í Fornhaga, Þór í Skriðu og lengst til hægri er
eigandi Sóleyjar, Jósavin í Litla-Dunhaga.
Á myndinni til hægri eru þeir félagar Vignir og Sámur við
vetrarþjálfun í norðan garranum síðasta sunnudag.
28.12.2007

18.12.2007

Nanett okkar var heldur óheppin um daginn. Hún skrapp ásamt dönskum
félögum sínum í Hlíðarfjall á snjóbretti. Ekki vildi betur til
en svo að hún datt heldur slysalega og handleggsbrotnaði. Það er svo
áleitin spurning hvort Danir eigi eitthvert erindi í
skíðabrekkur :-) Hún fór því fyrr en ætlað var í jólafrí og
stefnir að því að koma aftur til okkar í nýju ári, þegar hún verður
klár í slaginn.
12.12.2007

Um síðustu helgi sóttum við hrossin í fjallið fyrir ofan Litlu-Brekku og
komum þeim í heimahaga. Þau voru vel á sig komin, feit og
pattaraleg. Við gáfum þeim ormalyf og örmerktum þau folöld sem ekki
voru þegar merkt. Einnig tókum við DNA sýni úr öllum okkar folöldum.
20.11.2007

Á meðfylgjandi myndum eru stóðhestarnir Djarfur og Sámur. Djarfur er
brúnsokkóttur foli á fjórða vetur undan Þristi frá Feti og Deríu frá
Engimýri. Djarfur er orðinn ágætlega reiðfær eftir rúmlega
mánaðartamningu. Myndir AGG.
17.11.2007

Það hefur verið heldur leiðinlegt veður í dag, norðan átt og
snjókoma og hálfgert stórhríðarveður nú seinni partinn. Meðfylgjandi
myndir eru teknar um hádegisbil af þeim Húmfaxa og Pipar. Húmfaxi er
móvindóttur foli á sjötta vetur, þægur klárhestur með tölti sem við
höfum verið að þjálfa nú í haust en er nú kominn í stutt frí. Sá
brúni, sem reyndar er stjörnóttur og með leist á hægri afturfæti er
ógeltur veturgamall foli undan Hróðri frá Refsstöðum og Prinsessu
frá Litla-Dunhaga.
15.11.2007
Við héldum 5 hryssum í sumar og reyndust þær allar fylfullar skv.
sónar (fyrir rest). Hryssrnar eru listaðar hér að neðan ásamt
tilvonandi feðrum:
Hryssa:
Stóðhestur:
Hremmsa frá Borgarhóli
Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Dería frá Engimýri
Klerkur frá Bjarnanesi
Líf frá Litlu-Brekku
Álfur frá Selfossi
Syrpa frá Ytri-Hofdölum
Moli frá Skriðu
Prinsessa frá Litla-Dunhaga
Stáli frá Ytri-Bægisá
Einnig héldum við gæðingshryssunni Sigurdísi frá Hólabaki í
félagi við Björn bónda á Hólabaki, eiganda hryssunnar. Hún fór undir
Álf frá Selfossi og eigum við helmingshlut í tilvonandi afkvæmi.
15.11.2007

Moli frá Skriðu. Knapi er
Syrpa frá Ytri-Hofdölum og Vignir
eigandinn sjálfur Þór Jónsteinsson
Fórum með tvær hryssur, þær Prinsessu og Syrpu, í sónarskoðun
í gær. Staðfest var fyl í báðum hryssunum okkur til mikillar ánægju
:)
Syrpa var hjá Andvara frá Ey fyrri part sumars en náði ekki að
fyljast hjá honum. Því næst fór hún til Mola frá Skriðu og var þar
frá því byrjun ágúst og þar til í gær. Dágóður tími það, rúmir þrír
mánuðir!
Prinsessa er fylfull við Stála frá Ytri-Bægisá. Stáli er efnilegur 4
vetra foli undan Gusti frá Hóli og Nótt frá Akureyri (8,23). Myndir
af Mola og Syrpu tók Anna Guðrún.
4.11.2007

Það er um það bil mánuður síðan að við tókum inn tryppi í
frumtamningu og nokkur eldri hross í þjálfun, alls 15 hross. Yngstu
tryppin eru á fjórða vetur og eru undan stóðhestunum Þristi frá
Feti, Andvara frá Ey, Hrym frá Hofi og Flóa frá Húsavík, einnig foli á
fimmta vetur undan Stæl frá Miðkoti. Tryppin eru öll þæg og flest
orðin reiðfær. Á meðfylgjandi myndum, sem teknar eru í dag í sunnan
roki, má sjá Nanett á Þræðingu frá Glæsibæ og Vigni á Jaðri. Þræðing
er hryssa á 4. vetur frá Rikka og Kristjönu í Glæsibæ II. Hún er
undan Andvara frá Ey og Þrá frá Glæsibæ. Þræðing er sammæðra
gæðingshryssunni Þrumu frá Glæsibæ II sem var sýnd í þýskalandi nú í
haust og hlaut í aðaleinkunn 8,37.
10.10.2007

Það hefur verið heldur rólegt á vefnum hjá okkur undanfarnar vikur
enda búið að vera rólegt í hestamennskunni. Nú er hins vegar búið að
taka hross á hús, aðallega tryppi á fjórða vetur en einnig nokkur
eldri hross. Fyrir rúmri viku síðan kom til okkar dönsk stúlka sem
heitir Nanett Kvist og ætlar að vera með okkur í tamningum í vetur.
Á meðfylgjandi mynd eru Kata og Nanett á stóðréttum á Melgerðismelum um
síðustu helgi.
13.9.2007

Snerpa er komin til Svíþjóðar. Meðfylgjandi myndir tók Katrin
Willberg nýr eigandi Snerpu í Svíþjóð.
8.9.2007

Hending heitir þessi brúnskjótta hryssa. Hún er undan
Hremmsu frá Borgarhóli og Kletti frá
Hvammi. Hremmsa fór undir Þórodd frá Þóroddsstöðum í sumar og var
sónarskoðuð líklega fengin. Eigum eftir að láta skoða hana aftur til
að fá það endanlega staðfest.
8.9.2007

Árleg Bæjarkeppni Hrossaræktarfélagins Framfara var haldin á
dögunum. Hér fylgja nokkrar myndir af mæðgunum í Litlu-Brekku.
Lengst til vinstri Freyja og Litla Jörp, í miðju húsfreyjan sjálf
Jónína og Gjafar og lengst til hægri Kata og Gjafar.
6.9.2007

Líf var í hólfi hjá Álfi frá Selfossi og reyndist fylfull skv.
sónarskoðun :-)
17.8.2007

9. ágúst kastaði Prinsessa brúnu
hestfolaldi undan Mola frá Skriðu og eru myndirnar teknar þegar
folinn er 4 daga gamall. Prinsessa er nú í hólfi hjá Gígjari frá
Auðsholtshjáleigu.
17.8.2007

Við brugðum okkur á Heimsmeistaramót í Hollandi. Virkilega
skemmtilegt mót hjá Hollendingum og vel að öllu staðið. Eitthvað fór
nú lítið fyrir myndatökum hjá okkur en smelltum þó nokkrum á
sunnudeginum. Lengst til vinstri er Stina hinn norski á
stórgæðingnum Jarli frá Miðkrika, sem er sonur Andvara frá Ey eins
og flestir vita. Andvari kom feikna sterkur sem gæðingafaðir út úr
þessu móti og átti nokkra frábæra fulltrúa. Á myndinni í miðið eru
efstu knapar í fimmgangi að ríða heiðurshring eftir
verðlaunaafhendingu.
29.7.2007

Síðastliðið sumar hleyptum við úr tjörninni sem hefur verið við
húsin í Litlu-Brekku. Nú er svæðið orðið þurrt og stendur til
að fylla upp í það. Hvenær sem það kemst nú í verk :).
28.7.2007

Það er gaman að kubba! Verið er að byggja við íbúðarhúsið
okkar, bílskúr og herbergi, alls um 65 fm, og ganga framkvæmdir hratt
og vel. Byggt er úr plastkubbum.
23.7.2007

Smellið á auglýsinguna til að sjá hana stærri.
23.7.2007

Á sunnudeginum kepptu Kata (10 ára) á Gjafari í barnaflokki og
Freyja (7 ára) á Litlu-Jörp í pollaflokki. Allir fengu
verðlaunapening í viðurkenningaskyni í lokin. Kata og Gjafar
eru á myndinni til vinstri og vinkonurnar, Kara Hildur og Freyja,
til hægri.
22.7.2007

Fjölskyldan skellti sér á Æskulýðsmót Funa og Léttis um helgina.
Á laugardeginum var þrautabraut fyrir krakkana, hópreið, grill og
varðeldur. Freyja reið á Litlu-Jörp og Kata á Ögn en
Bjarney lét sér nægja að gæða sér á sykurpúðum um kvöldið.
Bráðskemmtilegt og vel heppnað mót hjá félögunum sem vonandi verður
endurtekið að ári. Meðfylgjandi myndir tók Frúin í Litlu-Brekku á
glænýju Olympus 410 myndavélinni sína sem hún er ekki lítið roggin
með :)
19.7.2007

Hringsmenn héldu skemmtilegt Íslandsmót um síðustu helgi. Vignir
keppti á Jaðri og Þráni og gekk þeim félögum ágætlega. Meðfylgjandi
myndir tók Arnar bóndi í Fornhaga
af Jaðri og Vigni í gæðingaskeiði, opnum flokki, en þeir
náðu fimmta sæti í þeirri grein.
17.7.2007

Í nótt fæddist jörp hryssa undan Esju Sól frá
Litlu-Brekku og Andvara frá Ey. Myndin lengst til vinstri er tekin
um 3 í nótt en hinar myndirnar nú í morgunsárið :)
16.7.2007

Sámur frá Litlu-Brekku er til afnota hjá okkur í sumar. Sámur er
þjáll og jafnvígur alhliða hestur með frábært geðslag. B: 8,06 - H:
7,98 - A: 8,01.
Verð (tollur og hólfagjald): 25.000 + vsk.
16.7.2007
Kíkið endilega á nýja sölusíðu
Hrossaræktarfélagsins
Framfara.
10.7.2007

Kíkið á sölusíðuna okkar. Ný hross
á söluskrá og fleiri væntanleg.
2.7.2007

Fjölskyldan brá sér með þrjú hross á Fjórðungsmót á Austurlandi,
FM07. Vignir keppti á Jaðri í A-flokki og á Þráni í B-flokki og
tölti. Kata keppti á Gjafari í barnaflokki. Heldur var nú veðrið
hráslagalegt fyrstu dagana en ekki væsti um okkur í fellihýsinu og
hrossin okkar fengu inni í hesthúsi á svæðinu. Um helgina var
hinsvegar hið besta veður og mótið vel lukkað. Á myndinni til
vinstri er Kata á Gjafari og til hægri er það sjálfur Kalli á þakinu
að skemmta mótsgestum.
21.6.2007

Freyja (7 ára) eignaðist sinn fyrsta reiðhest á dögunum. Það er jörp
hryssa á óræðum aldri sem heitir Litla-Jörp.
21.6.2007

Nýfædd brún hryssa undan Líf Ásaþórsdóttur og Sámi Garpssyni frá
Litlu-Brekku.
17.6.2007

Nýfædd systkyn undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Jarpur hestur
undan Eldingu Sprotadóttur og brúnstjörnótt hryssa undan Deríu frá
Engimýri.
17.6.2007

Síðbúin frétt af kynbótasýningu. Vignir sýndi 2 systkyni undan
Syrpu, Sám og Snerpu á kynbótasýningu sem fram fór á Sauðárkróki 2.
júní sl. Snerpa (mynd til hægri) hlaut í einkunn B: 7.59 H: 7.54 og
í aðaleinkunn 7,56. Sámur (til vinstri) hlaut í einkunn
B: 8,06 H: 7.98 og í aðaleinkunn 8,01 og þar með farseðil á
Fjórðungsmót. Myndirnar tók Anna Guðrún
Grétarsdóttir.
17.6.2007

Kata og Gjafar tóku þátt í firmakeppni Léttis á dögunum. Mamman sat
stolt í brekkunni og tók þessa mynd. Kata og Gjafar lentu í þriðja
sæti.
27.5.2007
Þá er fyrsta folald sumarsins í Litlu-Brekku komið í heiminn. Skjótt
hryssa undan Kletti frá Hvammi og Hremmsu frá Borgarhóli.
22.5.2007

Goðamót Léttis var haldið um síðustu helgi. Kata keppti á
Snerpu
frá Litlu-Brekku, dóttir Smiðs frá Miðsitju og
Syrpu okkar. Þeim vinkonum gekk bara vel og náðu 5. sæti í tölti
barna. Anna Guðrún tók þessar
myndir.
22.5.2007

Fleiri myndir af Vormóti Léttis.
Anna Guðrún tók þessar töltmyndir af Þráni frá Þinghóli og
Vigni.
16.5.2007

Þessi 3ja vetra ungfoli, Djarfur frá Litlu-Brekku, er laus til
útleigu/láns í sumar. Djarfur er undan Þristi frá Feti og
Deríu frá Engimýri. Í ungfolaskoðun sem fram
fór í Eyjafirði 2. maí sl. segir, í niðurlagi umsagnar " Djarfur
er vel gerður foli að flestu leyti. Hann hefur mjúka yfirlínu og
jafnan og fallegan bol. Hálsinn mætti vera hærra settur. Hann hefur
góðar hreyfingar á brokki sem lofa góðu rými".
Myndina tók Anna Guðrún
Grétarsdóttir þegar ungfolaskoðunin fór fram í hlöðunni á
Björgum. Smellið á mynd til að sjá hana stærri.
16.05.2007

Opna Norðurlandsmótið 26. og 27. maí á Hlíðarholtsvelli....smellið á
myndina til að sjá hana stærri.
06.05.2007

Meðfylgjandi myndir af Sámi frá Litlu-Brekku tók
Anna Guðrún Grétarsdóttir á
Vormóti Léttis sem haldið var í gær á Hlíðarholtsvelli.
Sámur er 5 vetra stóðhestur undan Garpi frá Auðsholtshjáleigu og
Syrpu frá Ytri-Hofdölum. Hann náði 4. sæti í fimmgangi sem er fínn
árangur hjá svo ungum hesti á sínu fyrsta móti. Stefnan er svo að
sýna hann í kynbótadómi í vor. Vignir mætti einnig með Jaðar frá Litlu-Brekku og Þráinn
frá Þinghóli. Jaðar náði 5. sæti í forkeppni í fimmgangi og 5. sæti
í gæðingaskeiði. Þráinn kom inn í 5-6. sæti í fjórgangi en endaði í
6. sæti í úrslitum.
29.04.2007

Veðrið hefur leikið við menn og skepnur undanfarna daga hér á
Norðurlandi. Á Möðruvöllum í Hörgárdal (um 2 km. sunnan við
Litlu-Brekku) fór hitastigið mest í 21,8 gráður í dag. Dagurinn var
notaður í vorverk og hrossarag. Á meðfylgjandi mynd eru bændur í
Litlu-Brekku, Garðar og Vignir að reyna að handsama Hildi, 2 vetra
hryssu undan Sámi og Hrifningu. Það hafðist fyrir rest !
20.04.2007

Hrifning frá Litlu-Brekku var sýnd á kynbótasýningu í Herning í
Danmörku í dag og hlaut mjög góðan dóm. Fyrir byggingu: 7,78 og
fyrir hæfileika 8,41, aðaleinkunn: 8,16. Hæfileikar skiptust
þannig: Tölt: 8,5 - brokk: 8,0 - skeið: 8,5 - stökk: 8,5 - vilji og
geðslag: 8,5 - fegurð í reið: 8,5 - fet: 7,5 - hægt tölt: 8,0 - hægt
stökk: 8,0. Knapi var Daníel Jónsson. Hrifning er undan Ægi frá
Móbergi og Hremmsu frá Borgarhóli.
Ánægjulegt að fyrsta afkvæmi Hremmsu skuli reynast svona vel. Við
óskum eigendum hryssunnar í Danaveldi innilega til hamingju með
árangurinn!
03.03.2007

Það gengur ekki alltaf eins og maður ætlar. Hér lentum við í
kröppum dansi á heimreiðinni að Þrastarhóli í Arnarneshreppi en
bíllinn rann aftur á bak í hálkunni og fimm hestar í kerrunni.
Hestarnir sluppu nokkuð vel og má segja að betur hafi farið en á
horfðist!
03.03.2007
Sámur frá Litlu-Brekku
Þráinn frá Þinghóli
Keppni á Mývatn open. Þráinn frá Þinghóli keppti í tölti og
náði 6,50. Einnig fór Sámur frá Litlu-Brekku í
stóðhestakynningu.
01.03.2007

Vefurinn opnaður.
icelandic horse icelandic horses
islands hest gelding stallion hingst icelandic horse icelandic horse
icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic
horse icelandic horse icelandic horses islands hest gelding
stallion hingst icelandic horse icelandic horse icelandic horses
islands hest gelding stallion hingst icelandic horse icelandic
horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst
icelandic horse icelandic horse icelandic horses islands hest
gelding stallion hingst icelandic horse álfur frá selfossi álfur frá
selfossi álfur frá selfossi álfur frá selfossiálfur frá selfossi
álfur frá selfossiálfur frá selfossi álfur frá selfossi |