Last updated 28.07.2010

28.07.2010

Höfum verið að pússa og mála glugga og þakskegg á íbúðarhúsinu í blíðunni.  Grípum í það á milli annarra verka.  Því verður vonandi lokið fyrir haustið :).  Vignir ætlar síðan að sýna  Prinsessu frá Garði á kynbótasýningu í Skagafirði á morgun.  

27.07.2010

Kata og Vignir hafa verið dugleg að ríða út undanfarið.  Þau hafa notið góðs af því síðustu vikuna að nú eru Robbi og Hulda búin að slá og hirða túnin okkar.  Þau hafa nýtt sér rúllurnar og nýslegin túnin sem æfingasvæði.  Góð tilbreyting frá hörðum veginum.

22.07.2010

Við rákum hrossin heim í gær, klipptum hófa og gáfum ormalyf.  Hestunum var síðan sleppt í fjallið þar sem þeir munu una vel næstu mánuðina.  Reiðhrossinn eru þó enn heima við í brúkun.  Á myndinni má sjá Kötu á Gjafari að ríða á undan hestunum til að vísa veginn upp úr hólfinu í fjallið.

21.07.2010

Nú erum við loksins farin að hreyfa hrossin aftur eftir langa pásu. En það eru 2-3 vikur síðan að við byrjuðum að hreyfa þau fyrstu eftir tveggja mánaða hlé. Við höfum ekki farið í neina rekstra enn sem komið er heldur bara verið að dóla með þau í rólegheitum heima við. Meðfylgjandi eru myndir af Ými Gustssyni. Ýmir er efnilegur fimmgangshestur sem er í mikilli framför þessa dagana.

21.07.2010

Við skelltum okkur í ferðalag um síðustu mánaðarmót (í stað landsmóts).  Tókum fellihýsið með okkur og gistum í bæjunum sem við brunum alltaf í gegnum á leiðinni suður þ.e. Blönduós og Borgarnes.  Við skoðuðum bæina og þræddum öll söfn og sundlaugar sem við fundum.  Við komum einnig við á Hvammstanga og náðum að taka út Selasetrið og ullarverksmiðjuna.  Síðan brunuðum við til Reykjavíkur og kíktum á menninguna þar líka t.d. Árbæjarsafnið, Kringluna og Hamborgarafabrikkuna :).  Hundurinn Birta fékk að fara með í ferðina og gekk það ótrúlega vel.  Á myndinni eru Brekkubúar að panta eitthvað sjoppufæði og Birta ætlar greinilega að panta sér eitthvað ljúffengt.   

01.07.2010

Lítið hefur verið að gera í hestamennskunni það sem af er sumars vegna hestapestarinnar.  Þetta hefur því verið óvanalegur júnímánuður hér á bæ.  Stelpurnar hafa ekkert lagt á en hafa verið duglegar að mæta á frjálsíþróttaæfingar í sveitinni.  Nú er sú yngsta komin með aldur til að mæta og hafa þær því allar þrjár farið á sömu æfingarnar, einstaklega foreldravænt ;).  Á myndinni má sjá Freyju stökkva langstökk á aldursflokkamóti á Akureyri.  Stefanía Steinsdóttir á Rauðalæk sendi okkur þessa mynd.

23.06.2010

Ný hross á söluskrá. Endilega kíkið.

23.06.2010

Hinir árlegu Brekkuleikar voru haldnir í Litlu Brekku á þjóðhátíðardaginn.  Þar mættu til leiks foreldrar og systkini Vignis með sínum fylgifiskum og að vanda var keppt í ýmsum íþróttagreinum eins og stígvélakasti með tvöföldum snúningi og rólustökki með frjálsri aðferð.  Mikið var deilt um úrslitin enda mikið keppnisfólk þarna á ferð :).  Í lok dagskrár var keppendum boðið upp á grilluð lambalæri.  Frábær dagur eins og alltaf.

22.06.2010

Mátti til að birta hérna tvær myndir af sama hrossinu. Þetta er hún Pyngja Prinsessu og Stáladóttir sem nú er orðinn tveggja vetra. Sem folald var hún heldur lítið fyrir augað blessunin og nánast eins og Skaparinn hafi verið eitthvað utan við sig vinnunni. En í dag er þetta orðin bara hin myndarlegasta hryssa.

19. júní 2010

Í gær fórum við með 4 hryssur undir stóðhesta. Röskva fór aftur undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu en meðfylgjandi myndir eru af Röskvu og syni hennar u. Gígjari þegar verið var að lesta kerruna. Dería fór líka undir Gígjar en Garðar pabbi Jónínu heldur henni þetta árið. Skör frá undir vindótta gæðinginn Glym frá Innri-Skeljabrekku og Esja-Sól fór undir Hrímni frá Ósi sem fór í rosa flottan dóm í Borgarnesi nú í vor.

19. júní 2010

Sláttur hófst óvenju snemma hér í Litlu-Brekku þetta árið eða 16. júní. Róbert og Hulda bændur í Litla-Dunhaga sjá alfarið um heyskapinn hér á bæ.

16. júní 2010

Pipar frá Litlu-Brekku er stóðhestur á fjórða vetur undan Hróðri frá Refsstöðum og Prinsessu frá Litla-Dunhaga. Við gerðum þennan fola vel reiðfæran í vetur og var jafnvel stefnt á sýningu í vor þó ekkert hafi verið ákveðið. Hann fór í frí vegna kvefpestar, eins og önnur hross hjá okkur, í byrjun maí. Við slepptum honum í ungfolahólf í gær en Vignir stökk á bak áður en við drógum undan honum svo við gætum smellt af honum nokkrum myndum. Pipar var auðveldur í tamningu og er efnilegur fimmgangshestur.

15. júní 2010

Það er búið að vera frábært veður síðustu daga.  Kvenpeningurinn á bænum er kominn í sumarfrí og hefur notið þess að vera heima í blíðunni.  Birta litla er mikill félagi stelpnanna og er mjög skemmtilegt að fylgjast með henni uppgötva allt það sem fylgir sumrinu t.d. gras, úðara og drullu. Það síðastnefnda er í miklu uppáhaldi en hún er orðin þaulvön að fara í sturtu.

12. júní 2010
 
Hún á það til að stela senunni Elva litla Álfsdóttir þegar maður kíkir á folaldshryssurnar.

11. júní 2010

Skör kastaði 9. júní þessum brúna hesti undan Kletti frá Hvammi. Það eru því heldur ójöfn kynjahlutföllin hjá okkur núna eða 5-1 fyrir strákunum. Ein hryssa er eftir að kasta svo ekki er öll von úti enn að hryssunum fjölgi á bænum. Myndirnar eru teknar að dag af þeim stutta hjá móður sinni og eitthvað að brölta við ánna.

6. júní 2010

Jæja, þá erum við búin að nefna þrjú folöld í viðbót.  Jarpskjótta Esjudóttirin heitir Elva, rauðblesótti Hremmsusonurinn Happafengur og brúni hesturinn undan Líf var nefndur Leiknir

6. júní 2010

Vignir var sannfærður um að Röskva myndi kasta í nótt og kíkti á hana bæði klukkan 2 og 6 en ekkert gerðist.  Kata og Jónína voru fyrstar á fætur í morgun og sáu þá að eitthvað var í gangi og strunsuðu niður í hólf til Röskvu.  Þegar þangað var komið var allt yfirstaðið.  Kominn brúnstjörnóttur hestur undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.  Á fyrri myndinni er stjarni litli 5 mínútna gamall en á þeirri seinni tæplega 2 klukkustunda.  Þetta er fyrsta folaldið hennar Röskvu en hún stendur sig vel í móðurhlutverkinu.

6. júní 2010

Dería kastaði brúnu hestfolaldi í fyrrinótt. Sá stutti er undan Eyjólfi frá Feti.  Stór og stæðilegur hestur með myndarlegan frampart eins og folöld undan Deríu eru gjörn á að vera.

30. maí 2010

Fengum tvö folöld í nótt.  Líf kastaði brúnu hestfolaldi undan Eyjólfi frá Feti og Esja Sól kastaði jarpskjóttri hryssu undan Álfi. Loksins fengum við skjótta litinn frá Álfi :). 

29. maí 2010
Einar Víðir Einarsson
Ritstjóra síðunnar hefur borist kvörtun vegna fréttar frá 27. maí 2010.  Þar kom fram að við hefðum farið með Eldingu undir Kapal frá Kommu.  En hið eina rétta er að Einar Víðir stórfrændi Vignis var svo almennilegur að fara með hryssuna fyrir okkur.  Rétt skal vera
rétt :). Á meðfylgjandi mynd er Frændi á Freyju frá Reykjum á móti í Ásbyrgi. 

27. maí 2010

Nú er Linda komin aftur til Svíþjóðar.  Hennar bíður skrifstofustarf í heimalandinu í sumar en það verður örugglega viðbrigði fyrir þessa miklu dýrakonu.  Hún á þó tvo Schäferhunda, hest og ROTTU sem hún þarf að hugsa um samhliða skrifstofustarfinu.  Á myndinni má sjá Lindu með brot af aloaveraflöskunum sem hún drakk í tíma og ótíma og enginn annar á heimilinu gat hugsað sér að drekka.  Gangi þér vel í nýju vinnunni Linda og takk fyrir góðan vetur :).  

27. maí 2010

Fórum í gær með Eldingu undir ungfolann Kapal frá Kommu . Kapall er á húsnotkun fyrir hluthafa hjá Hirti í Hnjúkahlíð við Blönduós. Elding átti síðast folald 2007 en undan henni er til Gígjarssonur á þriðja vetur. Hún hefur síðan þá verið reiðhross/keppnishross á bænum en verður nú sett í ræktunina.

25. maí 2010

Hremmsa kastaði í nótt rauðblesóttum Auðssyni frá Lundum. Litur og útlit eins og búið var að panta en hann hefði alveg mátt vera hún :-) enda er þetta þriðji rauðblesótti hesturinn í röð hjá henni blessaðri. Vignir fór að kíkja á hrossin í morgun um 6 leytið og hafði með sér myndavél enda nokkuð viss um að Hremmsa væri búinn að kasta.  Þegar að var komið reyndist sá stutti hálf skorðaður milli þúfna og gat ekki staðið upp hjálparlaust. Hann var feginn sopanum eftir leguna en virtist hálf ringlaður og vildi ekki hreyfa sig mikið í fyrstu. Við fórum svo með þau mæðgin heim á tún en þetta er í fyrsta skipti sem Hremmsa lætur ná sér út á víðavangi en hún hefur nú ekki verið þekkt fyrir að vera nein kelirófa og heldur sig helst í minnst 100 metra fjarlægt frá manninum ef hún á þess kost. En tryppin og hinar folaldsmerarnar voru forvitnar og aðgangsharðar við þann nýfædda og virtist sem Hremmsu líkað vel við afskiptasemi mannfólksins að þessu sinni.

22. maí 2010

Jæja þá er fyrsta folald sumarsins fætt hjá okkur. Það var sameign okkar með Fornhagabændum hún Brynja frá Árbæ sem kastaði 19. maí sl. fola undan undan Kvisti frá Skagaströnd. Sá stutti sem hlotið hefur nafnið Bastían ber skemmtilegan lit en hann er brúntvístjörnóttur með hvíta leista á öllum fótum :) Meðfylgjandi myndir tók Anna Guðrún af þeim mæðginum.

5. maí 2010
 
Sýningunni Æskan og hesturinn, sem halda átti á Sauðárkróki 1. maí, var frestað vegna hestaveikinnar.  Í staðinn hélt Léttir smá sýningu, 30. apríl, á atriðunum sem búið var að æfa stíft síðustu vikur í reiðhöllinni á Akureyri.  Þátttakendurnir buðu ættingjum og vinum að koma og horfa á. Börnin hittust klukkan 18 og fóru í spurningaratleik um íslenska hestinn og borðuðu síðan pizzu saman áður en þau sýndu klukkan 20.  Þetta var mjög skemmtilegur og vel heppnaður viðburður.  Yngstu krakkarnir sýndu leikritið Nýju fötin keisarans en unglingarnir og ungmennin sýndu atriðin úr sýningunni "Fákar og fjör" frá 17. apríl.  Á fyrstu myndinni má sjá tvo skraddara (Freyju og Köru vinkonu hennar) en á þeirri næstu má sjá hirðfífl keisarans gera æfingar á hestunum sínum. Á neðri myndunum má fyrst sjá sigurvegara ratleiksins Kristínu Ellý, Kötu og Valgerði og síðan er það Bjarney okkar sem fékk að "keppa" á Gjafari í höllinni þegar hún var orðin tóm.

1. maí 2010

Stilla frá Litlu-Brekku er hryssa á fjórða vetur undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Syrpu frá Ytri-Hofdölum. Við frumtömdum hana í haust (okt.-nóv.). Hún fékk síðan gott frí og var tekin inn í byrjun febrúar og fór þá í þjálfun á tamningastöðina í Torfunesi. Vignir leit við í Torfunesi í gær og Erlingur Ingvarsson tamningamaður lagði á hana. Stilla er ganggóð og næm hryssa sem tekur tamningu vel.

28. apríl 2010

Sokka til sölu.

19. apríl 2010

Sauðburður hófst í Litlu Brekku í nótt þegar Grána bar tveimur lömbum.  Linda, hin sænska, sem kom aftur til okkar um miðjan febrúar er sérleg aðstoðarkona í sauðburðinum.  Henni er samt vægast sagt ekkert um kindur gefið en lætur sig hafa það :).  Ekki er laust við að lömbin hafi þó brætt hana í morgun eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan.

18. apríl 2010

Í gærkvöldi fóru Vignir og Kata með Gjafar og Prinsessu frá Garði í TopReiterhöllina til að taka þátt í svokallaðri stórveislu hestamanna "Fákar og fjör".  Kata tók þátt í atriði sem kallaðist "Ungt og efnilegt" en Vignir var með "kátum körlum" úr Létti og sýndi einnig Prinsessu í klárhryssuatriði.  Á myndunum hér fyrir ofan er Vignir á Prinsessu.

17. apríl 2010

Það hefur aðeins bæst við dýraflóruna í Litlu Brekku á undanförnum mánuði.  Nýji varðhundurinn okkar, hún Birta, kom til okkar um miðjan mars.  Birta er þriggja og hálfs mánaða hvítur púðluhundur, fjörug og kát týpa.  Hún Freyja okkar fékk síðan fiskabúr og fiska í tilefni 10 ára afmælisins.  Tandri gamli er mjög áhugasamur um fiskana og er sjálfkjörinn aðstoðarmaður Freyju í fiskeldinu.

3. apríl 2010

Gjafar er orðinn aðalkeppnishestur fjölskyldunnar og klikkar aldrei :).  Freyja hélt upp á 10. afmælisdaginn með því að keppa á honum á Líflandsmóti sem haldið var í TOP REITER höllinni  3. apríl.  Mamman klikkaði á myndavélinni en Anna Þóra á Björgum smellti af Freyju og sendi okkur þesssa mynd. 

27. mars 2010

Vignir og Gjafar í 4. sæti á móti í reiðhöllinni á Björgum þann 27. mars.

21. mars 2010

Rákum stóðið heim í dag og klipptum hófa á nokkrum hrossum. Við smelltum þessari mynd af Leynd sem er 2v. Álfsdóttir.  Okkur finnst hún einstaklega fríð og fínleg þessi hryssa.

6. febrúar 2010
Vignir og Freyja löbbuðu út í stóð í dag og höfðu með sér myndavélina enda veðrið einstaklega fallegt. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.

      
Vinkonurnar Freyja og Litla-Jörp         Freyja og stóðhrossin.
     
Nei þetta er ekki ísbjarnarhrammur   Röskva sæl í sólinni
  
Pyngja og Röskva                            Sokka og Leynd
  
Hofsáin í klakaböndum                      Dalmey 3v. Gígjarsdóttir

19. janúar 2010
 
Folaldasýning Framfara var haldin á Björgum sl. laugardag. Á Björgum er risin reiðhöll um 1.000 fermetrar að stærð og var þetta fyrsti viðburðurinn sem þar fór fram. Við óskum Vidda og Ollu, Simma og Önnu Þóru og Jolla og Jónínu innilega til hamingju með glæsilega aðstöðu. Mikil skráning var á sýninguna eða um 80 folöld. Við fórum með 4 folöld en ekkert þeirra náði verðlaunasætum. Í hryssuflokknum varð efst brúnskjótt hryssa frá Syðra-Brekkukoti. Stór og myndarleg hryssa með fallega framgöngu. Á mynd til vinstri eru nágrannar okkar og eigendur hryssunnar þau Berti og Britta í Syðra-Koti. Í flokki hesta varð efstur snaggaralegur Gígjarssonur frá Möðrufelli og var hann jafnframt valinn flottasta folaldið af áhorfendum. Eigandi hans er Þorbjörn Hreinn (Lúlli) í Möðrufelli. Eigendum og ræktendum efstu folalda óskum við til hamingju með árangurinn. Nánar má lesa um úrslitin hér.  

19. janúar 2010

Katrin Wilberg frá Svíþjóð sendi okkur þessa mynd af fyrsta folaldi Snerpu frá Litlu-Brekku. Myndina tók Annika Ridington.

29. desember 2009

Við erum loksins farin að týna inn hrossin aftur. Ekkert komið á járn ennþá en þetta fer allt að koma ;-) Það er sannkallaður vetur hér í Eyjafirði og óvenju mikill jafnfallinn snjór. Michi í Austurríki sendi okkur þessa skemmtilegu mynd af henni og Djarfi, nýbúinn á námskeiðum hjá Einari Öder og Antoni Níelssyni.

23. desember 2009

Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.

28. nóvember 2009

Gaman er að segja frá því að Litla-Brekka var þriðja árið í röð tilnefnt sem ræktunarbú ársins á svæði HEÞ. Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð með að vera eitt af þeim búum sem tilnefnd eru. Í þetta sinn voru það Vilberg og Kristín í Kommu sem hlutu titilinn og óskum við þeim innilega til hamingju með það.
En eins og áður hefur komið fram er lítið um að vera í hestamennskunni núna á bænum því engin hross eru á járnum og því ekki farið í útihúsin nema til að sinna kindum, hænum og einni kanínu.  Linda, tamningakonan, er farin heim til Svíþjóðar en stefnir á að koma aftur til okkar einhvern tímann eftir áramót.  Við notum tímann því eins og venjulega á haustmánuðum að vinna í íbúðarhúsinu okkar.  Vignir er pískaður áfram við að mála stofuna og þvottahúsið og getur eflaust ekki beðið eftir því að taka hesta á hús :).   Á myndinni má sjá Freyju spila á harmonikkuna sína í fjósinu hjá Huldu og Robba í Litla-Dunhaga á tónleikum Tónlistarskóla Eyjafjarðar.  

28. nóvember 2009

Jæja, nú fer kjötið að verða til sem Garðar setti í reykkofann.  Bjarney og Freyja aðstoðuðu afa sinn við verkið en Garðar sér alfarið um að bæta við taði og kveikja upp.  Heimilisfólkið í Litlu-Brekku getur því gætt sér á dýrindis taðreyktu lambakjöti um jólin.  

16. nóvember 2009

Jæja það er langt síðan eitthvað hefur ratað hér inn á síðuna. Það eru svo sem rólegheit í hestamennskunni bænum. Við drógum undan og slepptum öllum hrossum um síðustu mánaðarmót og vorum þá búin að vera dunda með 4 frumtamningatryppi og nokkur eldri hross. Tryppin voru orðin reiðfær og líst okkur bara vel á þau. Allt þæg og meðfærileg hross með lausan gang. Reiknum með að taka 3 af þeim aftur inn um áramótin. Vignir og Berti nágranni í Syðra-Brekkukoti skruppu um síðustu helgi vestur í Gauksmýri. Þar var haldinn aðalfundur félagsskapar um stóðhestefnið Kapal frá Kommu. En þeir félagar eiga sinn hvorn sinn hvorn hlutinn í honum. Kapall fer á annan vetur undan Álfi frá Selfossi og Kjarnorku frá Kommu. Hann er því sammæðra Kappa og Kasper frá Kommu. Kapall er myndarlegur og vel þroskaður foli og fylgir hér mynd af gripnum. 

23. október 2009

Kíkið endilega á ný uppfærðan lista yfir "önnur hross í okkar eigu".

9. október 2009
Héldum 9 hryssum í sumar og eru þær sem betur fer allar fengnar skv. sónarskoðun. Þetta eru:

Röskva frá Hólavatni          Gígjar frá Auðsholtshjáleigu
Líf frá Litlu-Brekku              Eyjólfur frá Feti
Dería frá Engimýri              Eyjólfur frá Feti
Esja Sól frá Litlu-Brekku     Álfur frá Selfossi
Brynja frá Árbæ                 Kvistur frá Skagaströnd
Hremmsa frá Borgarhóli      Auður frá Lundum
Ólga frá Engimýri               Blær frá Torfunesi
Lind frá Erpsstöðum            Dynur frá Hvammi
Skör frá Litlu-Brekku           Klettur frá Hvammi

Tveimur af þessum hryssum er haldið í samstarfi við Önnu og Arnar í Fornhaga þ.e. Brynju og Lind. En  Lind er 1. verðlauna hryssa sem við leigðum í sumar. Hér má sjá heimasíðu eigendanna og mynd af hryssunni. Ólga frá Engimýri er hryssa í eigu Maríu Jespersen á Akureyri en við höldum henni sem sagt í ár og næsta ár. Ólga er viljug tölthryssa undan Höldi frá Brún og Pólstjörnu frá Nesi sem er fluggóð 1. verðlauna hryssa. Búið er að sýna eina hryssu u. Ólgu og er það 1. verðlauna hryssa í Danmörku.

30. september 2009

Síðasta helgi var notuð í hrossarag og þrif á útihúsum. Við rákum heim tryppi, folaldsmerar og reiðhross sem komin eru í haustfrí og gáfum þeim ormalyf og klipptum hófa. Vel hefur gengið með tryppin sem eru inni núna en það hefur verið heldur kalt og blautt undanfarna daga og tíminn því verið nýttur í annað en hrossaþjálfun. Á meðfylgjandi mynd er Linda á baki Ými frá Hítarnesi, 6 vetra Gustssyni, sem við keyptum seinni part sumars. Ýmir er þægur og meðfærilegur foli, skrefmikill og alhliðagengur en ekki mikið gerður ennþá.

24. september 2009

Nú erum við byrjuð að frumtemja tryppin sem eru á fjórða vetur ásamt því að trimma nokkur hross sem eru til sölu. Tryppin á fjórða eru fjögur talsins: Hryssa undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Syrpu, tvær hryssur undan Sámi og einn stóðhestur undan Hróðri frá Refsstöðum og Prinsessu. Erum búin að dunda í rúma viku með hryssurnar en Pipar (stóðhestinn) tókum við inn á sunnudag. Hjá okkur er sænsk stúlka, Linda Sohlberg, og hjálpar hún okkur með hestana. Á meðfylgjandi mynd er Linda að þjálfa Prýði frá Litlu-Brekku, 5 vetra hryssu undan Hrym frá Hofi og Prinsessu. Prýði er skemmtileg unghryssa, viljug og töltgeng og er hún til sölu hjá okkur.

5. september 2009

Smelltum nokkrum myndum af Þræðingu (5v. Andvaradóttir) í dag. Það er gaman að vinna með þessa hryssu. Hún er þæg og traust en vel viljug og alltaf til sama hvert maður beinir henni. Þá eru gangtegundirnar einstaklega heilsteyptar. Þetta er hryssa sem við teljum að eigi fullt erindi í keppnisbrautina. Ræktendur eru vinir okkar í Glæsibæ II þau Rikki og Kristjana. En þau eiga móðurina Þrá frá Glæsibæ. Þrá hefur gefið býsna góð hross t.d. tvær fyrstu verðlaunahryssur, Þreyju (8,02) og Þrumu (8,43). Undan Þrá eru til 5 sýndar hryssur. Fjórar þeirra hafa náð 8,5 fyrir tölt og ein hefur náð 9,0. Þrá er undan Þræði frá Nýjabæ sem var undan Sörla frá Sauðárkróki og Áshildi frá Áshildarstöðum en þau eru hálfsystkyni u. Feng frá Eiríksstöðum. Móðir Þráar er Nótt frá Hvassafelli u. Náttfara frá Ytra-Dalsgerði (Sörlasyni). Þrá er því þónokkuð mikið skyldleikaræktuð út af Sörla gamla.
Þræðing er auglýst til sölu.

2. september 2009

Árlegt Bjargarmót var haldið um liðna helgi og var það fjölsótt og skemmtilegt að venju. Kata keppti á Eldingu og Buska, Freyja á Gjafari, Vignir á Þræðingu og Jónína keppti á Gjöf.  Við tókum nokkrar myndir á mótinu en erum í einhverju brasi með "formatið" á myndunum svo við bíðum með að birta þær. Þess í stað fylgja hér myndir af mæðgum ríðandi í Einarsstaðaferðinni.

Við áttum tvær 5 vetra hryssur á síðsumarsýningum sumarsins. Brynja frá Árbæ var sýnd á Hellu en lækkaði aðaleinkunn frá þeim dómi sem hún náði 4 vetra. Hún hækkar reyndar byggingu í 8,24 en lækkar í hæfileikum og endaði með 8,11 en var með 8,14 í fyrra. Sýnandi var Erlingur Erlingsson. Svolítil vonbrigði með það en þetta eru lifandi skepnur sem eiga misgóða daga. Brynja er komin heim fengin við Kvist frá Skagaströnd og erum við afar kát með það og höfum trú að það geti orðið flott blanda. Eigendurnir skruppu á bak á henni þegar hún kom heim og urðu ekki fyrir vonbrigðum. Brynja er sjóðandi viljug , þjál og vel geng hryssa með mikinn fótaburð. Þræðing frá Glæsibæ II var sýnd á Akureyri og hlaut 7,70 í byggingu líkt og í vor en hækkaði umtalsvert í hæfileikum. Fór í 7,94 fyrir hæfileika og 7,84 í aðaleinkunn. Hún hlaut m.a.  8,5 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið og 9,0 fyrir stökk og hægt stökk. Sýnandi var Bjarni Jónasson.

15.ágúst 2009

Við komum heim á föstudaginn úr túrnum austur en þá höfðu hrossin okkar ekki komið heim í rúmar tvær vikur.  Ferðalagið gekk vel en þó var óvenju mikið um að laga þurfti járningar á leiðinni. Var haft á orði að menn væru hættir að svitna við járningarnar. Hrossin voru mun færri á leiðinni heim t.d. skutluðum við heim Eldingu sem hafði orðið fyrir smá hnjaski og tveimur hryssum sem stefnt er með í kynbótasýningu. Reksturinn heim gekk vel. Hrossin voru orðin rólegri og lestuðu sig fínt á eftir þeim sem undan riðu. Á mynd til vinstri er Simmi bóndi á Björgum að járna einn ferðahestinn. Fanndís heldur í og Anna Þóra fylgist með. Á mynd til hægri er Vignir að járna Þræðingu.

13. ágúst 2009

Heimilisfólkið í Litlu-Brekku tók þátt í Einarsstaðamótinu um síðustu helgi hver með sínu sniði.  Freyja, Kata og Vignir fóru í brautina en Bjarney og Jónína sáu um að hvetja í brekkunni.  Það var algjör bongóblíða á sunnudaginn og því ekki amalegt að sitja í brekkunni eins og sjá má á Bjarneyju og Brittu á mynd lengst til hægri.  Á fyrstu myndinni má sjá Kötu og Röskvu frá Hólavatni en þær enduðu í fimmta sæti í barnaflokki og síðan eru Vignir og Buski frá Bergsstöðum fyrir miðju að ríða B-úrslit í A-flokki.

6. ágúst 2009


Við riðum í Sörlastaði á mánudaginn með heimilisfólkinu í Syðra-Brekkukoti, Þrastarhóli, Björgum og Glæsibæ II ásamt nokkrum Akureyringum.  Reksturinn var mjög stór, yfir 90 hross og u.þ.b. 20 manns ríðandi.  Þetta var góður túr sem gekk vel.  Rikki í Glæsibæ II varð fimmtugur þennan dag og Valgeir sonur hans 19 ára.  Fjölskyldan bauð því upp á dýrindis grillað nautakjöt þegar við komum á áfangastaðinn í tilefni dagsins.  Við gistum á Sörlastöðum eina nótt og héldum svo túrnum áfram næsta dag en ætlunin er að enda á Einarstöðum á fimmtudag. 

3. ágúst 2009
 
Verslunarmannahelginni eyddum við á Sauðárkróki á Unglingalandsmóti.  Katrín Birna keppti þar í frjálsum og á Eldingu í fjórgangi og tölti.  Ekki veitti henni af tveimur aðstoðarmönnum, bílstjóra (mamma) og hestasveini (pabbi) því greinarnar í hestaíþróttunum og frjálsunum lentu mikið til á sama tíma og því var brunað á milli keppnissvæðanna :).  Kata og Elding komu heim með silfur og brons í tölti og fjórgangi.  Mótið gekk vel og var mjög skemmtilegt þó að það hafi verið ansi blautt á laugardaginn.  Í lok mótsins, á sunnudaginn, var haldið lítið frjálsíþróttamót fyrir 10 ára og yngri krakka sem Freyja og Bjarney tóku þátt í.

26. júlí 2009

Undanfarnir dagar hafa verið frekar rólegir og heimilisfólkið í Litlu Brekku hefur dundað sér við ýmislegt heima við.  Meðal annars smíðuðu Garðar og Vignir kofa úti í garði sem er ætlaður fyrir allt meiriháttar drullumall.  Kofann steyptu þeir niður í gær og er þegar búið að taka hann í notkun.  Fórum annan rekstrartúr í Glæsibæ II til að halda hrossunum í trimmi fyrir fyrirhugaðan túr í Einarsstaði í næstu viku.  Nú eru hryssurnar farnar að týnast heim frá stóðhestunum.  Sóttum Hremmsu í fyrradag fengna við Auð frá Lundum og Esja Sól kom heim í dag fengin við Álfi frá Selfossi :-)

22. júlí 2009

Fórum á dögunum í rekstur með vinafólki okkar í Glæsibæ II og Þrastarhóli.  Rikki í Glæsibæ II kom ríðandi til okkar ásamt fylgdarliði og við fylgdum honum heim næsta dag.  Þriðja daginn riðum við síðan frá Rikka heim með nágrönnum okkar á Þrastarhóli.  Ætlunin er að reka sömu leið fljótlega en við stefnum á lengri rekstur í ágúst.

5. júlí 2009

Nú er Lína byrjuð hjá okkur aftur og ætlar að temja hjá okkur í rúman mánuð.  Þessa dagana er því verið að járna og koma öllu í gang aftur en við höfum lítið sinnt þjálfun á undanförnum vikum.  Við fjárfestum í hringgerði frá Brimco á dögunum.  Gerðið hefur verið í mikilli notkun þann stutta tíma sem það hefur verið uppi.  Ekki spurning að það stórbætir vinnuaðstöðuna.

27. júní 2009

Nú erum við búin að halda Röskvu undir Gígjar frá Auðsholtshjáleigu. Við höfum ákveðið að gefa henni frí frá hnakknum næsta vetur en reiknum með að halda svo áfram með hana eftir það. Gígjar hefur verið að sanna sig í vor sem öflugur kynbótahestur. Sýnd voru 12 tryppi undan honum og þar af voru 9 þeirra aðeins 4 vetra gömul. Þrjú 4v. fóru í fyrstu verðlaun. Myndir frá vinstri: Röskva (Svava Jensdóttir), Gígjar (H.M.T. Peterse)

27. júní 2009
 
Skör kastaði 15. júní sl. brúnni hryssu undan Kappa frá Kommu. Sú stutta hefur hlotið nafnið Kjarnorka í höfuðið á ömmu sinni (föðurmóður) og er þar með búið að rjúfa þá hefð hjá okkur að upphafsstafur afkvæmis sé sá sami og hjá móður. En þar sem öll afkvæmi Syrpu (móður Skarar) byrja á S fannst okkur rétt að finna annan upphafstaf fyrir afkvæmi Skarar. Kjarnorka er frekar smá en býsna pattaraleg og fer aðallega um á tölti. Skör er á leið undir hinn skrefmikla gæðing Klett frá Hvammi. Myndir frá vinstri: Kjarnorka, Skör, Kappi (AGG).

27. júní 2009

Keyrðum þremur merum í hólf 15. júni sl.
Líf og Dería fóru í hólf á Miðgrund í Skagafirði undir Eyjólf frá Feti. Eyjólfur er 5 vetra brúnskjóttur (sokkóttur) klárhestur undan Þristi frá Feti og Álsey frá Feti. Hann var sýndur á Sörlastöðum í vor og hlaut prýðisdóm eða 8,11 og þar af 9,0 fyrir tölt og brokk. Móðir hans Álsey (Orradóttir) er viljug klárhryssa sem hlaut á sínum tíma 9,0 fyrir tölt og 9,5 fyrir hægt tölt. Þristur hefur svo verið að sanna sig sem frábær tölthestafaðir. Því fannst okkur spennandi að komast í þetta blóð. Esja-Sól (8,27) fór svo undir glæsihestinn Álf frá Selfossi (8,46). Meðfylgjandi mynd af Eyjólfi og Erlingi Erlings. frá Sörlastaðasýningunni fengum við senda frá Hinrik Má vini okkar en hann er formaður hrossaræktardeildarinnar Grána í Akrahreppi sem hefur umsjón með hestinum.

27. júní 2009

Hremmsa kastaði 10. júní sl. Afkvæmið reyndist hestur, glannablesóttur, hringeygður með leista á báðum. Taglið er svo að mestu skjannahvítt að lit. Faðir er Hróður frá Refsstöðum. Sá stutti hefur fengið nafnið Hermann. Hremmsa er farin undir glæsihestinn Auð frá Lundum. Hér fylgja svo nokkra myndir af þeim mæðginum (hægt er að smella á þær til að sjá þær stærri).

6. júní 2009

Hestfolald (til vinstri á mynd) undan Deríu frá Engimýri og Sámi frá Litlu Brekku kom í heiminn aðfaranótt fimmtudagsins 4. júní.  Þetta er stór og myndarlegur hestur sem leikur sér mikið.  Merfolaldið undan Prinsessu frá Garði og Aðli frá Nýjabæ hefur fengið nafnið Atorka.  Á myndinni til hægri er Freyja að athuga með Prinsessu og Atorku.

 31. maí 2009

Vignir sýndi Esju Sól og Þræðingu (5v. Andvaradóttir) í kynbótasýningunni á Króknum sem lauk  á föstudag. Esja Sól hlaut fyrir byggingu 8,26 og fyrir hæfileika 8,27 og 8,27 í aðaleinkunn. Hún er í raun með mjög jafnar og góðar tölur, einungis ein tala undir 8,0. Það er bak og lend uppá 7,0. Hún hlaut 9,0 fyrir fótagerð, hófa, prúðleika og skeið og 8,5 fyrir höfuð, vilja og geð og fet. Esja Sól var efst í sínum flokki og önnur hæst dæmda hryssa sýningarinnar. Við ætlum að halda Esju Sól nú í sumar og nú stendur yfir leit að heppilegum stóðhesti (góð ráð vel þegin :)). Þræðing hlaut 7,70 fyrir byggingu, 7,49 fyrir hæfileika og 7,57 í aðaleinkunn. Þræðing á mikið inni í hæfileikum og jafnvel eitthvað í byggingu en það verður framtíðin að leiða í ljós. Jakob Sigurðsson sýndi Röskvu í Hafnarfirði í síðustu viku. Hún fékk 8,33 fyrir byggingu, 7,60 fyrir hæfileika og 7,89 í aðaleinkunn. Hún er því lítið að bæta dóm frá fyrra ári og virðist hana vanta meira jafnvægi og styrk til að opna almennilega á meira rými en það á nú vonandi eftir að koma allt saman. Myndin er tekin nú í kvöld af Esju Sól. Hægt er að smella á hana til að sjá hana stærri.

26. maí 2009

Jæja þá eru kynbótasýningarnar byrjaðar á fullu og spennan í hámarki ! Djarfur var sýndur í Hafnarfirði í dag og fór í flottan dóm og hlaut 8,12 í aðaleinkunn. Þar af 9,0 fyrir tölt og vilja og geð og 8,5 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið og hægt stökk. Djarfur hefur verið í þjálfun hjá Ingu og Tona á Feti en var sýndur af Erlingi í Langholti. Congratulation Michaela :-)

IS2004165010 Djarfur frá Litlu-Brekku
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 = 8,02
Hæfileikar: 9,0 - 8,5 - 5,0 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 7,5 = 8,18
Aðaleinkunn: 8,12
Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Erlingur Erlingsson

24. maí 2009

Katrín Birna og Elding tóku þátt í firmakeppni Léttis sem haldin var sl. fimmtudag (Uppstigningardag). Það gekk vel hjá þeim stöllum og sigruðu þær barnaflokkinn. Meðfylgandi myndir tók Friðgeir Guðmundsson.

24. maí 2009

Um síðustu helgi var haldið Norðurlandsmeistarmótið í hestaíþróttum á Hlíðarholtsvelli. Vignir fór með þær systur Esju Sól og Eldingu. Það gekk ágætlega og í fimmgangi náðist 4.-5. sæti. Á meðfylgjandi mynd eru Vignir og Esja Sól (til vinstri) ásamt Jóni Herkovic á Formúlu að keppa til úrslita í fimmgangi. Myndina tók Friðgeir Guðmundsson sem birtir myndir sínar á heimasíðu Léttis.

21. maí 2009

Þá er fyrsta folaldið loksins komið :-)   Prinsessa frá Garði kastaði 18. maí jarpri hryssu. Sú stutta er undan Aðli frá Nýjabæ en hann verður einmitt hér á okkar svæði í sumar hjá hrossaræktarfélaginu Framfara.

 


Systurnar í Litlu-Brekku tóku þátt í sýningunni Æskan og hesturinn þar sem ungir knapar úr Skagafirði, Húnavatnssýslu og Eyjafirði sýndu listir sínar.  Bjarney og Freyja skiptust á að ríða á Gjafari frá Syðra-Fjalli en Katrín Birna reið á Eldingu frá Litlu-Brekku. Freyja og Kata hafa verið á vikulegum æfingum síðustu tvo mánuði fyrir þessa sýningu en Bjarney smellti sér í teymingarflokkinn eftir að vera búin að fara einu sinni á bak í vetur.  Sumir eru meira fyrir það að sýna en ríða út :).  

27. apríl

Við fórum ríðandi á kjörstað ásamt nágrönnum okkar þeim Axel oddvita á Þrastarhóli (til hægri á mynd) og Albert í Syðra-Brekkukoti (til vinstri á mynd).  Nú var í fyrsta skipti kosið í Leikhúsinu á Möðruvöllum og því bara hæfilegur reiðtúr að skreppa ríðandi á kjörstað.  Ólöf á Þrastarhóli kom ekki með okkur í þetta skiptið þar sem nýtt oddvitaefni er í ofninum :) en hún tók myndavélina með sér í bílinn og var að senda okkur þessa mynd. 

20. apríl 2009

Á laugardagskvöldið fór fram vígsla og hestasýning í reiðhöll Léttis á Akureyri. Litla-Brekka var þar með ræktunarbússýningu. Í henni tóku þátt Hinrik Bragason með Sám, Inga María Jónínudóttir með Djarf, Friðrik Már Sigurðsson með Jaðar, Katrín Birna með Eldingu og Vignir með Esju Sól. Við vorum ánægð með hvernig til tókst í frumraun okkar á þessu sviði og viljum nota tækifærið og þakka knöpunum kærlega fyrir að taka þátt í þessu með okkur. Á mynd til vinstri eru Kata og Elding í ræktunarbússýningunni en þær tóku líka þátt í opnunaratriðinum með Léttiskrökkunum. Á myndinni til hægri er Freyja ásamt nokkrum Léttiskrökkum að sýna hnakkana sem Top Reiter gaf Létti að þessu tilefni.

20. apríl 2009

Við áttum eftir að klára frásögn af suðurferð. Við heimsóttum Ingu Mæju og Tona tamningamenn á Feti en hjá þeim gistum við og vorum í góðu yfirlæti. Inga Mæja sýndi okkur Djarf frá Litlu-Brekku (5v. Þristssonur) en þau hafa verið með hann í þjálfun síðan við seldum hann fyrir um ári síðan. Djarfur er efnilegur klárhestur með tölti og er stefnt á að sýna hann í vor. Meðfylgjandi mynd er af Ingu og Djarfi.

14. apríl 2009

Í áðurnefndri suðurferð okkar litum við á tvo rauða fola sem við seldum í fyrra. Þá Hrungni frá Keldunesi (6v.) og Hróa frá Litlu-Brekku (5v.). Eigandi folanna er ungur og efnilegur tamningamaður, Bjarni Sveinsson á Selfossi og sýndi hann okkur báða hestana í reið. Folarnir eru báðir lofandi og vel unnir. Greinilega í góðum höndum hjá Bjarna. Á meðfylgjandi mynd er Bjarni á Hróa.

12. apríl 2009

Skruppum á suðurlandið með vinafólki okkar í Fornhaga 2 á föstudaginn langa og komum heim í gær.  Byrjuðum á því að koma við hjá Jakobi Sigurðssyni í Steinsholti í Leirársveit og kíktum á Röskvu okkar.  Jakob sýndi okkur hana inni í reiðskemmunni og sýndist okkur þjálfunarferlið vera á góðu róli.  Meira af ferðinni síðar.

9. apríl 2009
 
Stóri hófaklippingardagurinn var í dag. Við klipptum hófa á tryppum, folaldshryssum og nokkrum gömlum geldingum sem hafa verið úti í vetrarfríi alls 32 stk. Garðar (pabbi Jónínu) er mikill áhugamaður um íslenskar hænur. Hann smíðaði útungunarvél og nú eru komnir 10 sprækir hænuungar, sannkallaðir páskaungar.

5. apríl 2009

Hinrik Bragason keppti á Sámi frá Litlu-Brekku í fimmgangi Meistaradeildar VÍS sem fram fór í Ölfushöllinni sl. fimmtudagskvöld. Þeir félagar stóðu sig mjög vel og náðu 2.-3. sæti í forkeppni en enduðu í 5. sæti í úrslitum. Nánari umfjöllun má sjá á heimasíðu Hinna og Huldu á Árbakka, á Hestafréttum og á seisei.is. Meðfylgjandi mynd tók Fjölnir Þorgeirsson.

1. apríl 2009

Æskan og hesturinn hér norðanlands verður haldið á Akureyri 2. maí nk. Kata og Freyja eru báðar að æfa atriði í reiðhöllinni með Léttiskrökkum. Þær æfa einu sinni í viku en eru svo líka á reiðnámskeiði einu sinni í viku hjá Linu Erikson. Myndina á auglýsingunni tók húsfreyjan á bænum og er hún af Freyju og Litlu-Jörp.
 

1. apríl 2009

Röskva er komin í þjálfun til Jakobs Svavars Sigurðssonar tamningamanns í Steinsholti og er stefnt á að sýna hana í kynbótadómi í vor. Látum hér fylgja mynd af föður hennar, Prins frá Úlfljótsvatni (mynd af Prins birt með leyfi Snæbjörns á Úlfljótsvatni).
 

25. mars 2009

Vignir kom við hjá Birni bónda á Hólabaki um daginn og kíkti á sameignina Spyrnu frá Hólabaki. Spyrna er veturgömul hryssa undan Sigurdísi  (8,23) frá Hólabaki og Álfi (8,46) frá Selfossi. Sigurdís  er móðir hins kunna glæsihests Sigurs frá Hólabaki sem hefur verið að gera það gott á ísmótum í vetur. Mynd til vinstri er af Spyrnu. Myndina til hægri tók Anna Guðrún í Fornhaga af Sigurdísi og Tryggva Björnssyni.

24. mars 2009

Við höfum selt gæðingshryssuna Prinsessu frá Litla-Dunhaga. Kaupendur eru Haukur og Ragnhildur á Selfossi sem reka hrossabú að Austurási en kenna hrossarækt sína við Skeiðnes. Það er óneitanlega mikil eftirsjá í Prinsessu, en undan henni eigum við nokkurn hóp álitlegra tryppa. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með hryssuna og vonum að hún reynist þeim vel í ræktuninni.

2. mars 2009


Við notuðum góða veðrið um helgina til að smella nokkrum myndum af Þræðingu 5v. Andvaradóttur. Þræðing er hörku efnileg klárhryssa sem Lina hefur verið að þjálfa undanfarið.

23. febrúar 2009

Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir viku síðan og eru af þremur veturgömlum hryssum. Myndin lengst til vinstri er af brúnskjóttri hryssu, Hendingu u. Kletti frá Hvammi og Hremmsu frá Borgarhóli. Miðjumyndin er af Emblu. Hún er undan Andvara frá Ey og Esju-Sól. Embla er auglýst til sölu á sölusíðunni. Lengst til hægri er svo mynd af brúnsjörnóttri hryssu, Dalmey u. Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Deríu.

23. febrúar 2009

Christina Lund, eigandi Álfs frá Selfossi, kom hingað í heimsókn í síðustu viku ásamt tveimur norskum vinkonum sínum. Þær voru á yfirreið um landið til að skoða Álfsbörn. Þær sendu okkur meðfylgjandi mynd af Leynd okkar Álfsdóttur (ljósmyndina tók Tine Johansen).

15. febrúar 2009

Það var góður dagur til útreiða í gær. Sólskin og logn og reiðfærið alveg frábært. Á meðfylgjandi myndum er Lina að "ríða út" úr hesthúsinu. Má nú ekki minna vera dyraopið.

15. febrúar 2009

Hér koma nýjar myndir af Leynd (Álfsdóttur) frá Litlu-Brekku. Leynd tók þátt í úrvalssýningu folalda á svæði HEÞ og lenti þar í öðru sæti í flokki merfolalda.

10. febrúar 2009

Vignir tók þátt í mótaröð Léttis sem fram fór í reiðhöllinni á Akureyri sl. föstudagskvöld. Hann mætti með Esju-Sól í 60 m. skeið og Þráinn í fjórgang. Hann náði 4. sæti í báðum greinum og þar með rétt til þess að taka þátt í úrslitum sem fara fram síðar. Næstu greinar sem keppt verður í eru tölt og fimmgangur og er stefnt á að mæta með jarpa gengið aftur. Mynd til vinstri er af Vigni og Esju-Sól. Á mynd til hægri færir mótsstjórinn Áslaug Kristjánsdóttir fimm efstu í skeiðinu viðurkenningu.  Lengst til hægri á mynd eru Þór og Seifur frá Skriðu, en þeir náðu besta tímanum.

4. febrúar 2009

19. janúar sl. byrjaði Lina Erikson að temja hjá okkur. Hún býr á Akureyri en kemur flesta daga og þjálfar 5-6 hross. Lina er lærður hestafræðingur og reiðkennari frá Hólaskóla.

18. janúar 2009
 
Í gær var mikið um að vera í sveitinni. Dagurinn hófst með folaldasýningu Framfara og var hún haldin hjá Hauki og Þorra á Ytri-Bægisá.  Á folaldasýningunni voru skráð til leiks um 65 folöld og gekk sýningin hratt og vel fyrir sig. Hestaflokkinn sigraði Álmur Álfssonur frá Skriðu og var hann jafnframt kosinn glæsilegasta folaldið af áhorfendum. Hryssuflokkinn sigraði folald frá okkur, Leynd Álfsdóttir. Verðlaunin voru ekki af verri endanum. 15 kg. fata af söltuðu folaldakjöti frá Benna Jensen.  Um kvöldið var svo haldin uppskeruhátíð Framfara á Melum. Mikið stuð og mikið gaman. Nú er Leynd komin á hús ásamt Líf móður sinni sem verður tamin í vetur. Við stefnum að því að koma með nýjar myndir af Leynd á næstu dögum.

15. janúar 2009

Erum búin að endurnýja lista yfir ræktunarhryssur í Litlu-Brekku. Þetta eru hryssur sem flestar eru í folaldseign en einnig hryssur sem eru í þjálfun núna og stefnt er á að fari í folaldseignir. Smellið á hrossin okkar til að skoða nánar.

14. janúar 2009

Nú færist smátt og smátt líf í hestamennskuna í Litlu-Brekku. Við erum með 8 hross á húsi núna en þar af á Axel nágranni tvö. Stelpurnar voru duglegar að skreppa á hestbak í jólafríinu. Kata reið á Þráni og Freyja á Gjafari. Hross á húsi núna eru eftirtalin: Þráinn frá Þinghóli, Gjafar frá Syðra-Fjalli, Þræðing 5v. (Andvaradóttir) frá Glæsibæ, Röskva 5v. (Prinsdóttir) frá Hólavatni, Hildur 4v. (Sámsdóttir) frá Litlu-Brekku og Saga 4v. (Gígjarsdóttir) frá Hólabaki. Meðfylgjandi mynd er af Vigni og Sögu.

14. janúar 2009

Brynja frá Árbæ er nú farin í þjálfun til Erlings og Viðju í Langholti. Stefnt er á að sýna hana aftur í kynbótadómi í vor.

10. janúar 2009
 
Uppgjör 2008 :-)  Síðast liðið ár var okkar besta ár í hrossaræktinni. Við sýndum 6 hross í kynbótadómi og þar af 4 frá Litlu-Brekku. Þetta voru Sámur (8,22), Skör (8,02), Elding (7,85) og Esja-Sól (8,21) öll frá Litlu-Brekku. Meðaleinkunn þeirra var 8,08. Einnig eigum við helming í tveimur 4v. hryssum sem sýndar voru á árinu: Prinsessu frá Garði (7,98) og Brynju frá Árbæ (8,14). Litla-Brekka var annað árið í röð tilnefnt sem ræktunarbú ársins á svæði HEÞ og erum við ákaflega stolt af því. Á meðfylgjandi mynd er Vignir að taka við blómvendi á haustfundi HEÞ ásamt öðrum sem tilnefndir voru. Fyrir valinu varð Syðra-Garðshorn í Svarfaðardal.
Þá voru Vignir, Kata og Freyja býsna ötul á keppnisvellinum og gekk það upp og niður eins og gengur en náðu oft ágætis árangri. Vignir var tilnefndur sem knapi ársins hjá Létti en Þorbjörn Hreinn Matthíasson hreppti verðskuldað titilinn. Tamningar og sala gengu afar vel. Hjá okkur var dönsk stúlka, Nanett Kvist, og á hún stóran þátt í því hversu vel gekk við tamningar og sölu. Enda bráðlagin og dugleg stelpa. Hún starfaði hjá okkur með hléum frá október 2007 - júni 2008. Á meðfylgandi mynd er Nanett á Kol frá Syðri-Ey sem er einn af þeim hestum sem við seldum á sl. ári.
 

10. janúar 2009

Hér kemur síðbúin nýjárskveðja frá fjölskyldunni í Litlu-Brekku. Við þökkum fyrir góð samskipti á liðnu ári og óskum ykkur farsældar á því nýja. Meðfylgjandi er mynd sem húsfreyjan tók yfir Akureyri um miðnætti á gamlárskvöld. Við skruppum yfir í Vaðlaheiði til að fylgjast með skothríðinni og njóta útsýnissins.

23. nóvember 2008

Þetta er mynd af óskýrðu merfolaldi sem við eigum í félagi við Björn bónda á Hólabaki. Hryssan er undan glæsihrossunum Sigurdísi frá Hólabaki (8,23) og Álfi frá Selfossi (8,46). Við höfum ekki enn séð hryssuna en Björn sendi okkur þessa mynd í dag.

27. október 2008

Við héldum 6 hryssum undir stóðhesta í sumar. 5 reyndust fengnar skv. sónarskoðun en ein var geld. Mynd til vinstri er af Skör okkar en hún er fylfull við glæsihestinum Kappa frá Kommu (mynd til hægri Kappi/AGG)

Eftirtaldar hryssur er fengnar.
Hryssa:                                        Stóðhestur:
Hremmsa frá Borgarhóli        -    Hróður frá Refsstöðum
Dería frá Engimýri                -    Sámur frá Litlu-Brekku
Prinsessa frá Garði               -    Aðall frá Nýjabæ
Skör frá Litlu-Brekku            -    Kappi frá Kommu
Prinsessa frá Litla-Dunhaga   -    Sveinn-Hervar frá Þúfu

21. október 2008

Það er heldur rólegt yfir hestamennskunni í Litlu-Brekku þessa dagana. Fjölskyldan brá sér til Mallorca í vikutíma og hafði það huggulegt í sólinni. Með okkur í för voru Anna Þóra og Simmi á Björgum ásamt börnum. Alveg frábær ferð með góðum ferðafélögum.

Allir eru nú komnir á fullt í vinnu og skóla og aukatími notaður í ýmis haustverk og framkvæmdir við íbúðarhúsið. Nú er lilla-bleika innréttingin í eldhúsinu orðin hvít þannig að húsfreyjan fékk nú loksins sínu framgengt eftir níu ára baráttu.

Við stefnum á að taka hross til þjálfunar í byrjun desember og tíminn þangað til verður nýttur til að ditta svolítið meira að íbúðarhúsinu.

Það gleymdist alveg að segja frá því hér á síðunni að Prinsessa kastaði jarpri hryssu um miðjan ágúst sl. Hefur hún fengið nafnið Pyngja. Við fórum með Prinsessu og Líf í sónarskoðun í dag. Prinsessa var hjá Sveini-Hervari og var staðfest fyl í henni. Líf var hjá Tenór frá Túnsbergi en reyndist því miður geld. Það hefur þó þann kost að nú verður hægt að temja merina en það "gleymdist" víst um árið. Hún var gerð reiðfær á fjórða vetur en lenti svo í folaldseignum hjá okkur og er búin að gefa okkur 3 hryssur, 2 undan Sámi frá Litlu-Brekku og eina undan Álfi frá Selfossi.

21. september 2008

Svava Jensdóttir sendi okkur þessar flottu myndir af Röskvu og móður hennar, Veru frá Hólavatni (th).

17.september 2008

Nýverið keyptum við hryssuna Röskvu frá Hólavatni. Röskva er 4 vetra, bráðefnileg hryssa, rauðskjótt að lit. Hún er undan Prins frá Úlfljótsvatni og Veru frá Hólavatni sem er ósýnd hryssa undan Magna frá Búlandi (u. Sörla Búlandi). Röskva var sýnd í sumar og hlaut 8,31 fyrir sköpulag, 7,44 fyrir hæfileika og 7,81 í aðaleinkunn. Fyrri eigandi hennar er Kristófer Helgi Pálssson á Hvolsvelli. Kristófer og kona hans Svava Jensdóttir halda úti heimasíðu um sína hrossarækt á slóðinni www.holavatn.com. Myndina til hægri tók Svava. Myndina til vinstri tók Jens Einarsson á Héraðssýningu á Gaddstaðaflötum sl. vor. Knapi er Elvar Þormarsson. Jens skrifar einnig skemmtilega frétt um þessa hryssu á heimasíðu sinni www.seisei.is . Fréttina má nálgast hér. Við hlökkum til að taka Röskvu inn til þjálfunar í vetur og stefnum á að sýna hana í vor.  Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.

10. september 2008

Djarfur frá Litlu-Brekku hefur fengið heimasíðu. Þar má sjá myndir og ýmsar upplýsingar um klárinn á þýsku. Djarfur er 4v. stóðhestur u. Þristi frá Feti og Deríu frá Engimýri. Hann er enn staðsettur á Íslandi og er stefnt á að sýna hann að vori. Inga og Toni í Syðra-Holti, nú tamningamenn á Feti eru með klárinn í þjálfun. Eigandi Djarfs er Michaela Schwandl frá Austurríki. Kíkið endilega á síðuna, slóðin er  www.djarfur.at.tf

2. september 2008


Meðfylgjandi myndir eru af Sóma Syrpusyni og fósturfjölskyldu hans. Dería gekk Sóma í móðurstað og ganga því tvö folöld undir henni. Það hefur gengið vel að venja þau saman. Við höfðum þau inni fyrstu sólarhringana, tókum bæði folöldin undan henni og hleyptum þeim báðum í einu til hennar með nokkuð reglulegu millibili allan sólarhringinn. Dería tók þessu vel frá upphafi og leið ekki á löngu þar til hún virtist sætta sig við þetta. Sómi litli fylgir fóstru sinni hvert fótmál og er duglegur að bjarga sér.

31. ágúst 2008

Vignir sýndi Esju Sól á Síðsumarsýningu á Sauðárkróki í vikunni. Hún hlaut flottan dóm: Sköpulag 8,24 og hæfileikar 8,18, Aðaleinkunn 8,21. Við erum að sjálfsögðu stolt af Esju Sól og þessari frumraun hennar á kynbótabrautinni. Hún verður í þjálfun aftur næsta vetur og er stefnt á kynbótasýningu næsta vor. Esja Sól er 6v. undan Núma frá Þóroddsstöðum og Elju frá Ytri Hofdölum. Hún var tamin lítilsháttar á fjórða vetur, átti svo folald í fyrra og var tekinn inn eftir áramót. Undan henni er til veturgömul Andvaradóttir. Meðfylgjandi mynd er af heimasíðu Léttis en hún var tekin á Einarsstaðamótinu í 100 metra skeiði þar sem hún lenti í 3. sæti með tímann 8,54 sek.

IS2002265005 Esja Sól frá Litlu-Brekku
Litur: 3400 Jarpur/rauð- einlitt 
Sköpulag: 8,5 - 8,0 - 6,5 - 8,5 - 9,0 - 7,5 - 8,5 - 9,0 = 8,24
Hæfileikar: 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 = 8,18
Aðaleinkunn: 8,21
Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 5,0

 31. ágúst 2008
 
Tókum þátt í þremur mótum í ágústmánuði.  Vignir fór með hálfsysturnar Esju Sól og Eldingu til Dalvíkur á opið íþróttamót.  Hann náði úrslitasætum í tölti, fjórgangi og fimmgangi og í gæðingaskeiði fóru hann og Esja Sól heim með gullið.

Helgina 9.-10. ágúst fór fjölskyldan til Einarsstaða með fellihýsið þar sem Vignir, Kata og Freyja tóku þátt í keppni.  Þeim gekk öllum ágætlega en það sem stóð líklega upp úr eftir helgina var að Freyja (8 ára) og Litla-Jörp (25 vetra) komust inn í úrslit.  Þær enduðu í 7. sæti og Kata í því 3.

Bjargarmótið var haldið um síðustu helgi og voru Freyja og Kata fulltrúar Litlu-Brekku á því móti.  Freyja mætti að sjálfsögðu á Litlu-Jörp en Kata með Eldingu og gekk þeim báðum vel. Kata og Elding eru að ná vel saman þannig að Gjafar varð eftir heima í þetta skiptið.  Þetta var að vanda mjög skemmtilegt mót þar sem sveitungar og félagar úr Framfara komu saman og áttu góðan dag.  Vikuna áður var haldið reiðnámskeið á vegum Framfara sem stelpurnar tóku þátt í en mótið var nokkurs konar endapunktur á því.   Til vinstri er Freyja og Litla-Jörp á Einarsstöðum og Kata og Elding á Bjargarmóti t.h.

  
31. ágúst 2008
 
Hún Syrpa okkar fórst 23. ágúst sl. Hún var í hólfi hjá Kappa frá Kommu og hafði fallið ofan í skurð. Dýralæknir telur að hún hafi hálsbrotnað við fallið.  Fráfall hennar er okkur mikill missir enda var hún í sérstöku uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Syrpa var aðalkeppnishross Vignis til nokkura ára og áttu þau farsælan feril að baki. Hún hafði einnig sannað sig sem kynbótahryssa. Í sumar voru sýnd tvö hross undan henni og fóru þau bæði í fyrstu verðlaun. Sámur (8,22) og Skör (8,02). Syrpa var nýköstuð rauðtvístjörnóttum hesti undan Mola frá Skriðu. Sá hefur fengið nafnið Sómi. Hann gengur nú undir annari folaldshryssu og gengur vel að venja hann undir. Auk Sóma eigum við tvö ótamin tryppi undan henni: Spóa 3v.  undan Ofsa frá Brún og Stillu 2v. undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.

20. ágúst 2008
Brynja hækkaði stökk úr 8,0 í 8,5 í yfirliti sl. mánudag. Hún fór því í 8,18 fyrir hæfileika og 8,14 í aðaleinkun. Prinsessa hækkaði ekki og endaði því með 7,98.

17. ágúst 2008

Þráinn frá Litla-Dal til sölu. Kíkið á sölusíðu.

16. ágúst 2008


Við eigum tvær 4 vetra hryssur, Brynju frá Árbæ og Prinsessu frá Garði, á síðsumarsýningunni á Hellu sem fram fer þessa dagana. Við brugðum undir okkur betri fætinum og skruppum suður til að sjá þær í sýningunni. Ferðafélagar okkar voru þau Anna Guðrún og Arnar í Fornhaga, sem eiga Brynju frá Árbæ með okkur. Brynja (brúna hryssan á myndunum) fór í 8,12 í aðaleinkunn og erum við eigendurnir í  skýjunum með þennan árangur. Prinsessa, (jarpa hryssan á myndunum) sem við eigum í félagi við Guðmund og Enrice í Garði, fékk einnig mjög góðan dóm 7,98. Þessar hryssur standa nú tvær efstar fyrir yfirlit sem fram fer á mánudag. Sýnandi er Erlingur Erlingsson. Myndirnar tók Anna Guðrún.

IS2004286939 Brynja frá Árbæ
Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,5 - 8,0 = 8,08
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 6,5 - 8,0 - 9,0 - 8,5 - 6,0 = 8,14
Aðaleinkunn: 8,12      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 7,5

IS2004266616 Prinsessa frá Garði

Sköpulag: 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 7,96
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 6,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,0 = 7,99
Aðaleinkunn: 7,98      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 7,5
 

13. ágúst 2008
 
Fyrir um viku síðan rákum við tryppin heim, gáfum ormalyf, klipptum hófa og rákum svo stóðið upp í fjall. Við notuðum tækifærið og tókum myndir af nokkrum tryppanna. Hér fylgja myndir af fjórum unghryssum. Á fyrstu myndinni (uppi til vinstri) er Embla IS2007265005 frá Litlu-Brekku. Embla er jörp veturgömul hryssa undan Andvara frá Ey og Esju-Sól frá Litlu-Brekku. Á miðjumyndinni er Saga IS2005256277 frá Hólabaki. Hún er 3ja vetra undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Sigurdísi frá Hólabaki. Lengst til hægri er Lygna IS2006265006 frá Litlu-Brekku, 2ja vetra undan Sámi frá Litlu-Brekku og Líf frá Litlu-Brekku. Á neðstu myndinni er veturgömul hryssa, Þöll IS2007258736 frá Hjaltastaðahvammi. Hún er undan Þokka frá Kýrholti og Glennu frá Syðra-Skörðugili.

31. júlí 2008

Við höfun nú selt stóðhestinn Sám frá Litlu-Brekku. Kaupandi er Hestvit ehf. sem er fyrirtæki Hinriks Bragasonar og Huldu Gústafsdóttur í Árbakka. Sámur er 6 vetra gamall. Hann hlaut í vor 8,22 í aðaleinkunn í kynbótadómi og hefur verið að sanna sig sem keppnishestur. Hann hefur nú þegar náð 7,07 í einkunn í fimmgangi og 8,34 í A-flokki. Við óskum nýjum eigendum til hamingju með hestinn. Meðfylgjandi myndir af Vigni og Sámi  tók Anna Guðrún í Fornhaga á úrtöku Léttis fyrir Landsmót.

28.júlí 2008

Á laugardaginn keyrðum við fjögur hross á Kaupangsbakka og riðum þaðan í Bjarg til ömmu Jónínu.  Þar voru afkomendur hennar saman komnir til að grilla og hafa notalega kvöldstund saman.  Kveikt var á heimatilbúnum kyndlum, Ævar þandi nikkuna og ýmislegt brallað.
 

28.júlí 2008

Á fimmtudaginn riðum við í Baugasel í Barkárdal með vinafólki okkar í Glæsibæ og á Björgum og þeirra fylgifiskum :).  Við reynum að komast að minnsta kosti einu sinni á ári í Baugasel og ekki brást veðurblíðan frekar en í fyrri ferðum. Við gistum þar eina nótt og riðum svo aftur heim um hádegi á föstudag.  Fleiri myndir úr ferðinni hér

20. júlí 2008
Við höfum verið afspyrnu löt við að setja inn efni á heimasíðuna undanfarið. Hér koma helstu hestafréttir síðustu vikna...Smellið á myndir til að sjá þær stærri...


Stelpurnar tóku þátt í "Æskulýðsmóti Norðurlands" sem haldið var á Melgerðismelum í blíðskaparveðri um helgina. Á laugardeginum var keppt í þrautabraut auk þess sem farin var hópreið um svæðið. Í dag sunnudag var svo keppt í pollaflokki, barnaflokki og unglingaflokki með firmakeppnisformi. Á myndinni lengst til vinstri er Bjarney á Litlu-Jörp að keppa í sérstökum "prinsessuflokki" sem var reyndar utan dagskrár. Fyrir miðju er Kata að keppa í barnaflokki á Eldingu frá Litlu-Brekku. Þær stöllur urðu í fyrsta sæti. Á mynd til hægri er Freyja að bregða á leik með Litlu-Jörp.


Kata og Gjafar stóðu sig vel í barnaflokki á Landsmótinu. Þau hlutu í einkunn 8,15 og voru tveimur sætum frá því að komast í milliriðil. Ekki gekk sem skildi hjá karli föður hennar með þá Þráinn og Sám og eru umræður um það við eldhúsborðið hvort ekki sé rétt að sá gamli fari að leggja hvítu reiðbuxunum og einbeiti sér heldur að hestasveinshlutverkinu :-)


25. júní kastaði Líf fallegri brúnni hryssu undan Álfi frá Selfossi. Sú litla hefur fengið nafnið Leynd. Líf fór í hólf til Tenórs frá Túnsbergi.


Elding fór í kynbótadóm á Dalvík og hækkaði hæfileikaeinkunn umtalsvert frá því á Sauðárkrókssýningunni. Hún er klárhryssa og hlaut 8,5 fyrir tölt, hægt tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. 8,0 fyrir brokk og fet og 9,0 fyrir hægt stökk. 7,90 fyrir hæfileika og 7,85 í aðaleinkunn. Knapi á Eldingu var Tryggvi Björnsson á Blönduósi. Myndirnar tók Anna Guðrún í Fornhaga.


26. júní 2008

Nú erum við að undirbúa okkur fyrir Landsmótið á Gaddstaðaflötum.  Þrjú hross frá Litlu-Brekku búinu fengu fararleyfi á Landsmót fyrir hönd Léttis. Vignir fer með Sám í A-flokk og Þráinn í B-flokk. Kata fer með Gjafar í barnaflokkinn. Á meðfylgjandi myndum eru Kata og Freyja að skola rykið af keppnishrossunum.

25. júní 2008

Ný hross á söluskrá. Kíkið endilega á Hross til sölu.

24.júní 2008

Hremmsa kastaði rauðblesóttu hestfolaldi undan Þóroddi frá Þóroddstöðum þann 20. júní.  Hann hefur fengið nafnið Haukur.  Freyja átti hugmyndina að þeirri nafngift :).  Dagsgamall fór hann vestur í Skagafjörð en á föstudagskvöldið keyrði Vignir Hremmsu undir Hróð frá Refsstöðum. 

10.júní 2008

Hestfolaldið undan Deríu og Klerki hefur verið nefnt Dani.  Það þótti Nanett, dönsku tamningakonunni, ekki leiðinlegt.

9. júní 2008

Aðfaranótt sunnudagsins kastaði Dería brúnu hestfolaldi undan Klerki frá Bjarnanesi.  Mæðgurnar í Litlu Brekku skunduðu með myndavélina upp í fjallhólfið til að ná myndum af nýköstuðu folaldinu en einn ferðafélaginn þverneitaði að fara yfir ána og því voru teknar myndir af ýmsu öðru í ferðinni í staðinn.  Sumir létu mynda sig við að hoppa yfir eða hinu megin við.  Aðrir vildu frekar láta taka mynd af sér RÉTTU megin við með systrum sínum og Koli sem stillti sér upp eins og hinir.  Fljótlega verður farinn annar leiðangur til að mynda folaldið :).   

8. júní 2008

Á föstudagskvöldið síðastliðið var haldið töltmót á Björgum.  Mótið var kolólöglegt í alla staði og þeim mun skemmtilegra.  Katrín Birna og Vignir tóku þátt, Vignir á Eldingu (t.v.) og Þráni frá Þinghóli (fyrir miðju) og Kata á Gjafari (t.h.).  Þeim gekk bara vel en Vignir var efstur eftir forkeppni á Þráni og endaði einnig efstur.  Frúin mætti með myndavélina, nýbúin á ljósmyndanámskeiði, undir mikilli pressu um að standa sig við myndatökuna.

5. júní 2008
 
Fórum með 3 hross í kynbótadóm á Sauðárkróki í síðustu viku. Vignir sýndi Sám og Eldingu en Bjarni Jónasson sýndi Skör. Sámur hlaut 8,22 í aðaleinkunn, 8,09 fyrir sköpulag og 8,30 fyrir hæfileika. Skör er 5 vetra hryssa, sammæðra Sámi. Hún er efnileg klárhryssa hlaut í aðaleinkunn 8,02 þar af 8,24 fyrir byggingu og 7,88 fyrir hæfileika. Elding hlaut í aðaleinkunn 7,66 þar af 7,78 fyrir byggingu og 7,58 fyrir hæfileika. Þetta var því ánægjuleg útkoma fyrir okkur. Sámur er að hækka um 20 kommur frá síðasta ári og Skör smellir sér í fyrstu verðlaun á sinni fyrstu sýningu. Við tókum því miður engar myndir á sýningunni en hér fylgja nokkar gamlar. Sámur og Vignir lengst til vinstri, þá Skör og Bergur, sem þjálfaði hana í vetur og th. Elding og Nanett.

21. maí 2008

Kata og Freyja tóku þátt í Goðamóti Léttis sem haldið var um síðustu helgi. Kata keppti á Gjafari í fjórgangi og tölti barna og Freyja keppti á Litlu-Jörp í pollaflokki. Kata varð í öðru sæti í fjórgangi og fimmta sæti í tölti. Meðfylgjandi myndir tók Anna Guðrún af Kötu og Gjafari og vinkonunum Pálínu, Silvíu og Freyju.

15. maí 2008

Vignir og Nanett tóku þátt í vormóti Léttis sem haldið var annan í hvítasunnu. Nanett fór með Eldingu og Vignir fór með Sám og nafnana Þráinn frá Þinghóli og Þráinn frá Litla-Dal. Vignir og Sámur náðu öðru sæti í fimmgangi, á eftir Degi frá Strandarhöfði, með einkunina 6,37 í forkeppni og 6,71 í úrslitum. Meðfylgjandi myndir tók Anna Guðrún af þeim félögum. Smellið á myndir til að sjá þær stærri.

8. maí 2008

Þetta er nýtt merki hrossaræktarbúsins í Litlu-Brekku. Hönnuður merkisins er Hugrún Ívarsdóttir á Akureyri.  Huggu er margt til lista lagt eins og sjá má á heimasíðu hennar, www.merkilegt.is  Þessi léttstígi og fallegi gæðingur verður náttúrulega ræktunarmarkmið búsins, engin spurning  :-)

7. maí 2008

Póstur til sölu. Sjá nánar hér.

6. maí 2008
 
Meðfylgjandi myndir eru teknar í gær af Andvaradótturinni Þræðingu frá Glæsibæ II. Þræðing er á fjórða vetur og hefur Nanett verið að temja hana í vetur. Hún er nú farin að stíga tölt á hægri ferð og sýnir falleg tilþrif. Spennandi hestefni, að okkar mati allavega :-) Smellið á myndir til að sjá þær stærri.

5. maí 2008

Fjölskyldan varði laugardeginum í Skagafirði. Þar fór fram sýningin "Æskan og hesturinn" í reiðhöllinnin á Sauðárkróki. Þarna komu saman krakkar frá nokkrum hestamannafélögum á Norðurlandi og voru með æfð atriði af ýmsum toga, ss. sirkus, jafnvægisatriði, boðhlaup, munsturreið ofl. Kata og Freyja tóku þátt í sýningaratriðum Léttis. Enda hafa verið stífar æfingar hjá þeim í reiðhöllinni á Akureyri. Hér má sjá fleiri myndir frá þessum skemmtilega degi.

2. maí 2008

Litla-Brekka tekur þátt í gæðastýrðri hrossarækt. Sjá nánar hér.

12. apríl 2008

Fórum í hrossarekstur inn Hörgárdal í gær með Bjargarbændum. Við erum búin að fara nokkra svona túra í vetur, góð tilbreyting fyrir hesta og menn.

30. mars

Það hefur viðrað vel til útreiða undanfarið. Prinsessa, 4v. Orradóttir, (mynd lengst til vinstri) er að verða reiðfær og búið að fara nokkrum sinnum út veg á henni. Hún er þæg og meðfærileg, skemmtilegt og jákvætt tryppi. Hún velur brokkið en hefur þó sýnt að ganglagið er opið og ábyggilega stutt í töltið. Á miðjumyndinni er Hrói frá Litlu-Brekku. Hrói er foli á fjórða vetur sem við tókum inn í byrjun mars. Hann er undan Blæ frá Múla (Andvarasyni) og Hremmsu frá Borgarhóli og er tryppi nr. 2 sem tamið er undan þeirri hryssu. Hann er nú þessa dagana að taka sín fyrstu skref með knapa á baki. Á myndinni lengst til hægri er Bjarney að prófa Litlu-Jörp, reiðhrossið hennar Freyju.

28. mars 2008

Um síðustu helgi var haldið Stjörnutölt í skautahöllinni á Akureyri. Vignir og Nanett tóku að sér undanreið fyrir töltkeppnina. Vignir sýndi einnig Sám í stóðhestakynningu. Á meðfylgjandi myndum er frá vinstri talið Nanett og Elding, Vignir og Þráinn, Vignir og Sámur. Jónína tók myndina í miðjunni en Anna Guðrún hinar tvær.

17. mars 2008

Skruppum suður á land um helgina til þess meðal annars að kíkja á hryssuna okkar Brynju frá Árbæ sem er í tamningu hjá Erlingi Erlingssyni í Langholti. Virkilega álitleg hryssa þar á ferð. Með okkur á ferð voru Anna Guðrún og Arnar í Fornhaga sem eiga hryssuna með okkur. Anna tók meðfylgjandi myndir af Brynju og Erlingi.

10. mars 2008

Nanett og Vignir tóku þátt í ÍSFIMI sem Þorbjörn Matthíasson og Inga Bára Ingólfsdóttir stóðu fyrir á Leirutjörninni um helgina. Nanett sýndi Eldingu og Gjafar í tölti og Vignir mætti með Þráinn frá Þinghóli í tölt, Sám í stóðhestasýningu og Þráinn frá Litla-Dal í skeið. Þráinn frá Litla-Dal náði fyrsta sæti í 100m skeiði. Vel heppnað og skemmtilegt mót. Anna Guðrún tók meðfylgjandi myndir af Nanett og Eldingu og Vigni og Þráni.

8. mars 2008

Meðfylgjandi myndir eru af Djarfi frá Litlu-Brekku. Djarfur er stóðhestur á fjórða vetur undan Þristi frá Feti og Deríu frá Engimýri. Folinn er einstaklega ljúfur og meðfærilegur. Aðeins er farið að þreifa fyrir tölti og virðist það liggja opið fyrir honum. Hér má sjá fleiri myndir af Djarfi sem teknar eru í dag. 

7. mars 2008

Skruppum í Skagafjörðinn í dag og kíktum í heimsókn til Bergs bónda á Narfastöðum. Hann er að þjálfa fyrir okkur hryssuna Skör frá Litlu-Brekku. Skör er á fimmta vetri undan Nagla frá Þúfu og Syrpu frá Ytri-Hofdölum. Hryssan verður áfram í þjálfun hjá Bergi og er stefnt á að sýna hana í kynbótadómi í vor.

5. mars 2008

Nýtt hross á söluskrá, Perla frá Litlu-Brekku. Kíkið á Hross til sölu.

2. mars 2008
Rákum heim stóðið í dag, klipptum hófa og lúsaböðuðum.

18.2.2007

Vignir og Nanett tóku þátt í Bautatölti í Skautahöllinni á Akureyri um liðna helgi. Vignir sýndi Þráinn og Sám en Nanett mætti með Gjafar. Vel skipulagt og skemmtilegt mót. Meðfylgjandi myndir tók Anna Guðrún. Lengst til vinstri eru Þráinn og Vignir, þá Sámur og Vignir og lengst til hægri er Nanett á Gjafari.  

4.2.2008

Það ríkir sannkallaður vetur á Norðurlandi þessa dagana og langt síðan við höfum séð svona mikinn snjó. Nú er Nanett komin aftur til okkar og hrossunum fjölgar smátt og smátt aftur í hesthúsinu. Rikki í Glæsibæ kom um síðustu helgi og járnaði 5 stykki svo nú eru 11 hross komin á járn. Á meðfylgjandi mynd er Nanett að hringteyma Prinsessu frá Garði, undan Orra frá Þúfu og Menju (Gustsdóttur) frá Garði. Prinsessa er 4 vetra hryssa (fædd 2004) sem við eigum í félagi með Guðmundi og Enrice bændum í Garði í Aðaldal.

24.1.2008

Elding er nú komin á járn eftir nærri tveggja ára hlé. Skeifnaspretturinn var farinn í dag og voru þessar myndir teknar af því tilfefni.

23.1.2008

Þær stöllur Freyja og Litla-Jörp hafa verið nokkuð iðnar við útreiðar á nýju ári.

23.1.2008

Korka er nú seld og lagði af stað til Danmerkur í dag.
 

23.1.2008

12. janúar sl. var haldin folaldasýning Framfara á Björgum í Hörgárdal og uppskeruhátíð félagsins um kvöldið.  Við fórum með 4 folöld en ekkert þeirra náði verðlaunasæti. Aftur á móti átti Sámur tvö afkvæmi í úrslitum, þau Krumma frá Glæsibæ II og Sóleyju frá Litla-Dunhaga. Sóley varð efst í flokki merfolalda. Á myndinni til hægri eru kampakátir hrossaræktendur með verðlaun sín. Talið frá vinstri Arnar í Fornhaga, Þór í Skriðu og lengst til hægri er eigandi Sóleyjar, Jósavin í Litla-Dunhaga.
Á myndinni til hægri eru þeir félagar Vignir og Sámur við vetrarþjálfun í norðan garranum síðasta sunnudag.

28.12.2007

18.12.2007

Nanett okkar var heldur óheppin um daginn. Hún skrapp ásamt dönskum félögum sínum í Hlíðarfjall á snjóbretti.  Ekki vildi betur til en svo að hún datt heldur slysalega og handleggsbrotnaði. Það er svo áleitin spurning hvort Danir eigi eitthvert erindi í
skíðabrekkur :-)  Hún fór því fyrr en ætlað var í jólafrí og stefnir að því að koma aftur til okkar í nýju ári, þegar hún verður klár í slaginn.

12.12.2007

Um síðustu helgi sóttum við hrossin í fjallið fyrir ofan Litlu-Brekku og komum þeim í heimahaga. Þau voru vel á sig komin, feit og pattaraleg. Við gáfum þeim ormalyf og örmerktum þau folöld sem ekki voru þegar merkt. Einnig tókum við DNA sýni úr öllum okkar folöldum.

20.11.2007

Á meðfylgjandi myndum eru stóðhestarnir Djarfur og Sámur. Djarfur er brúnsokkóttur foli á fjórða vetur undan Þristi frá Feti og Deríu frá Engimýri. Djarfur er orðinn ágætlega reiðfær eftir rúmlega mánaðartamningu. Myndir AGG.

17.11.2007

Það hefur verið heldur leiðinlegt veður í dag, norðan átt og snjókoma og hálfgert stórhríðarveður nú seinni partinn. Meðfylgjandi myndir eru teknar um hádegisbil af þeim Húmfaxa og Pipar. Húmfaxi er móvindóttur foli á sjötta vetur, þægur klárhestur með tölti sem við höfum verið að þjálfa nú í haust en er nú kominn í stutt frí. Sá brúni, sem reyndar er stjörnóttur og með leist á hægri afturfæti er ógeltur veturgamall foli undan Hróðri frá Refsstöðum og Prinsessu frá Litla-Dunhaga.

15.11.2007
Við héldum 5 hryssum í sumar og reyndust þær allar fylfullar skv. sónar (fyrir rest). Hryssrnar eru listaðar hér að neðan ásamt tilvonandi feðrum:
Hryssa:                                        Stóðhestur:
Hremmsa frá Borgarhóli             Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Dería frá Engimýri                      Klerkur frá Bjarnanesi
Líf frá Litlu-Brekku                     Álfur frá Selfossi
Syrpa frá Ytri-Hofdölum             Moli frá Skriðu
Prinsessa frá Litla-Dunhaga       Stáli frá Ytri-Bægisá
Einnig héldum við gæðingshryssunni Sigurdísi frá Hólabaki í félagi við Björn bónda á Hólabaki, eiganda hryssunnar. Hún fór undir Álf frá Selfossi og eigum við helmingshlut í tilvonandi afkvæmi.

15.11.2007

Moli frá Skriðu. Knapi er                       Syrpa frá Ytri-Hofdölum og Vignir
eigandinn sjálfur Þór Jónsteinsson

Fórum með tvær hryssur, þær Prinsessu og Syrpu, í sónarskoðun í gær. Staðfest var fyl í báðum hryssunum okkur til mikillar ánægju :)
Syrpa var hjá Andvara frá Ey fyrri part sumars en náði ekki að fyljast hjá honum. Því næst fór hún til Mola frá Skriðu og var þar frá því byrjun ágúst og þar til í gær. Dágóður tími það, rúmir þrír mánuðir!
Prinsessa er fylfull við Stála frá Ytri-Bægisá. Stáli er efnilegur 4 vetra foli undan Gusti frá Hóli og Nótt frá Akureyri (8,23). Myndir af Mola og Syrpu tók Anna Guðrún.
 

4.11.2007
 
Það er um það bil mánuður síðan að við tókum inn tryppi í frumtamningu og nokkur eldri hross í þjálfun, alls 15 hross. Yngstu tryppin eru á fjórða vetur og eru undan stóðhestunum Þristi frá Feti, Andvara frá Ey, Hrym frá Hofi og Flóa frá Húsavík, einnig foli á fimmta vetur undan Stæl frá Miðkoti. Tryppin eru öll þæg og flest orðin reiðfær. Á meðfylgjandi myndum, sem teknar eru í dag í sunnan roki, má sjá Nanett á Þræðingu frá Glæsibæ og Vigni á Jaðri. Þræðing er hryssa á 4. vetur frá Rikka og Kristjönu í Glæsibæ II. Hún er undan Andvara frá Ey og Þrá frá Glæsibæ. Þræðing er sammæðra gæðingshryssunni Þrumu frá Glæsibæ II sem var sýnd í þýskalandi nú í haust og hlaut í aðaleinkunn 8,37.

10.10.2007

Það hefur verið heldur rólegt á vefnum hjá okkur undanfarnar vikur enda búið að vera rólegt í hestamennskunni. Nú er hins vegar búið að taka hross á hús, aðallega tryppi á fjórða vetur en einnig nokkur eldri hross. Fyrir rúmri viku síðan kom til okkar dönsk stúlka sem heitir Nanett Kvist og ætlar að vera með okkur í tamningum í vetur. Á meðfylgjandi mynd eru Kata og Nanett á stóðréttum á Melgerðismelum um síðustu helgi.

13.9.2007

Snerpa er komin til Svíþjóðar. Meðfylgjandi myndir tók Katrin Willberg nýr eigandi Snerpu í Svíþjóð.

8.9.2007

Hending heitir þessi brúnskjótta hryssa. Hún er undan Hremmsu frá Borgarhóli og Kletti frá Hvammi. Hremmsa fór undir Þórodd frá Þóroddsstöðum í sumar og var sónarskoðuð líklega fengin. Eigum eftir að láta skoða hana aftur til að fá það endanlega staðfest.

8.9.2007

Árleg Bæjarkeppni Hrossaræktarfélagins Framfara var haldin á dögunum. Hér fylgja nokkrar myndir af mæðgunum í Litlu-Brekku. Lengst til vinstri Freyja og Litla Jörp, í miðju húsfreyjan sjálf Jónína og Gjafar og lengst til hægri Kata og Gjafar. 

6.9.2007

Líf var í hólfi hjá Álfi frá Selfossi og reyndist fylfull skv. sónarskoðun :-)

17.8.2007

9. ágúst kastaði Prinsessa brúnu hestfolaldi undan Mola frá Skriðu og eru myndirnar teknar þegar folinn er 4 daga gamall. Prinsessa er nú í hólfi hjá Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.

17.8.2007

Við brugðum okkur á Heimsmeistaramót í Hollandi. Virkilega skemmtilegt mót hjá Hollendingum og vel að öllu staðið. Eitthvað fór nú lítið fyrir myndatökum hjá okkur en smelltum þó nokkrum á sunnudeginum. Lengst til vinstri er Stina hinn norski á stórgæðingnum Jarli frá Miðkrika, sem er sonur Andvara frá Ey eins og flestir vita. Andvari kom feikna sterkur sem gæðingafaðir út úr þessu móti og átti nokkra frábæra fulltrúa. Á myndinni í miðið eru efstu knapar í fimmgangi að ríða heiðurshring eftir verðlaunaafhendingu.

29.7.2007

Síðastliðið sumar hleyptum við úr tjörninni sem hefur verið við húsin í Litlu-Brekku.  Nú er svæðið orðið þurrt og stendur til að fylla upp í það.  Hvenær sem það kemst nú í verk  :).

28.7.2007

Það er gaman að kubba!  Verið er að byggja við íbúðarhúsið okkar, bílskúr og herbergi, alls um 65 fm, og ganga framkvæmdir hratt og vel. Byggt er úr plastkubbum.

23.7.2007

Smellið á auglýsinguna til að sjá hana stærri.

23.7.2007

Á sunnudeginum kepptu Kata (10 ára) á Gjafari í barnaflokki og Freyja (7 ára) á Litlu-Jörp í pollaflokki. Allir fengu verðlaunapening í viðurkenningaskyni í lokin.  Kata og Gjafar eru á myndinni til vinstri og vinkonurnar, Kara Hildur og Freyja, til hægri.

22.7.2007

Fjölskyldan skellti sér á Æskulýðsmót Funa og Léttis um helgina.  Á laugardeginum var þrautabraut fyrir krakkana, hópreið, grill og varðeldur.   Freyja reið á Litlu-Jörp og Kata á Ögn en Bjarney lét sér nægja að gæða sér á sykurpúðum um kvöldið.  Bráðskemmtilegt og vel heppnað mót hjá félögunum sem vonandi verður endurtekið að ári. Meðfylgjandi myndir tók Frúin í Litlu-Brekku á glænýju Olympus 410 myndavélinni sína sem hún er ekki lítið roggin með :)

19.7.2007
 
Hringsmenn héldu skemmtilegt Íslandsmót um síðustu helgi. Vignir keppti á Jaðri og Þráni og gekk þeim félögum ágætlega. Meðfylgjandi myndir tók Arnar bóndi í Fornhaga af Jaðri og Vigni í gæðingaskeiði, opnum flokki, en þeir náðu fimmta sæti í þeirri grein.

17.7.2007

Í nótt fæddist jörp hryssa undan Esju Sól frá Litlu-Brekku og Andvara frá Ey. Myndin lengst til vinstri er tekin um 3 í nótt en hinar myndirnar nú í morgunsárið :)

16.7.2007
 
Sámur frá Litlu-Brekku er til afnota hjá okkur í sumar. Sámur er þjáll og jafnvígur alhliða hestur með frábært geðslag. B: 8,06 - H: 7,98 - A: 8,01.
Verð (tollur og hólfagjald): 25.000 + vsk.
 

16.7.2007
Kíkið endilega á nýja sölusíðu Hrossaræktarfélagsins Framfara.

10.7.2007

Kíkið á sölusíðuna okkar. Ný hross á söluskrá og fleiri væntanleg.

2.7.2007
 
Fjölskyldan brá sér með þrjú hross á Fjórðungsmót á Austurlandi, FM07. Vignir keppti á Jaðri í A-flokki og á Þráni í B-flokki og tölti. Kata keppti á Gjafari í barnaflokki. Heldur var nú veðrið hráslagalegt fyrstu dagana en ekki væsti um okkur í fellihýsinu og hrossin okkar fengu inni í hesthúsi á svæðinu. Um helgina var hinsvegar hið besta veður og mótið vel lukkað. Á myndinni til vinstri er Kata á Gjafari og til hægri er það sjálfur Kalli á þakinu að skemmta mótsgestum.

21.6.2007
   
Freyja (7 ára) eignaðist sinn fyrsta reiðhest á dögunum. Það er jörp hryssa á óræðum aldri sem heitir Litla-Jörp.

21.6.2007
 
Nýfædd brún hryssa undan Líf Ásaþórsdóttur og Sámi Garpssyni frá Litlu-Brekku.

17.6.2007
  
Nýfædd systkyn undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu. Jarpur hestur undan Eldingu Sprotadóttur og brúnstjörnótt hryssa undan Deríu frá Engimýri.

17.6.2007

Síðbúin frétt af kynbótasýningu. Vignir sýndi 2 systkyni undan Syrpu, Sám og Snerpu á kynbótasýningu sem fram fór á Sauðárkróki 2. júní sl. Snerpa (mynd til hægri) hlaut í einkunn B: 7.59 H: 7.54 og í aðaleinkunn 7,56.  Sámur (til vinstri)  hlaut í einkunn B: 8,06 H: 7.98 og í aðaleinkunn 8,01 og þar með farseðil á Fjórðungsmót. Myndirnar tók Anna Guðrún Grétarsdóttir.

17.6.2007

Kata og Gjafar tóku þátt í firmakeppni Léttis á dögunum. Mamman sat stolt í brekkunni og tók þessa mynd. Kata og Gjafar lentu í þriðja sæti.

27.5.2007
      
Þá er fyrsta folald sumarsins í Litlu-Brekku komið í heiminn. Skjótt hryssa undan Kletti frá Hvammi og Hremmsu frá Borgarhóli.

22.5.2007
   
Goðamót Léttis var haldið um síðustu helgi. Kata keppti á Snerpu  frá Litlu-Brekku, dóttir Smiðs frá Miðsitju og Syrpu okkar. Þeim vinkonum gekk bara vel og náðu 5. sæti í tölti barna. Anna Guðrún tók þessar myndir.

22.5.2007
 
Fleiri myndir af Vormóti Léttis. Anna Guðrún tók þessar töltmyndir af Þráni frá Þinghóli og Vigni.

16.5.2007

Þessi 3ja vetra ungfoli, Djarfur frá Litlu-Brekku, er laus til útleigu/láns í sumar. Djarfur er undan Þristi frá Feti og Deríu frá Engimýri. Í ungfolaskoðun sem fram fór í Eyjafirði 2. maí sl. segir, í niðurlagi umsagnar " Djarfur er vel gerður foli að flestu leyti. Hann hefur mjúka yfirlínu og jafnan og fallegan bol. Hálsinn mætti vera hærra settur. Hann hefur góðar hreyfingar á brokki sem lofa góðu rými".
Myndina tók Anna Guðrún Grétarsdóttir þegar ungfolaskoðunin fór fram í hlöðunni á Björgum. Smellið á mynd til að sjá hana stærri.
 

16.05.2007

Opna Norðurlandsmótið 26. og 27. maí á Hlíðarholtsvelli....smellið á myndina til að sjá hana stærri.

06.05.2007
     
Meðfylgjandi myndir af Sámi frá Litlu-Brekku tók Anna Guðrún Grétarsdóttir á Vormóti Léttis sem haldið var í gær á Hlíðarholtsvelli. Sámur er 5 vetra stóðhestur undan Garpi frá Auðsholtshjáleigu og Syrpu frá Ytri-Hofdölum. Hann náði 4. sæti í fimmgangi sem er fínn árangur hjá svo ungum hesti á sínu fyrsta móti. Stefnan er svo að sýna hann í kynbótadómi í vor.  Vignir mætti einnig með Jaðar frá Litlu-Brekku og Þráinn frá Þinghóli. Jaðar náði 5. sæti í forkeppni í fimmgangi og 5. sæti í gæðingaskeiði. Þráinn kom inn í 5-6. sæti í fjórgangi en endaði í 6. sæti í úrslitum.

29.04.2007

Veðrið hefur leikið við menn og skepnur undanfarna daga hér á Norðurlandi. Á Möðruvöllum í Hörgárdal (um 2 km. sunnan við Litlu-Brekku) fór hitastigið mest í 21,8 gráður í dag. Dagurinn var notaður í vorverk og hrossarag. Á meðfylgjandi mynd eru bændur í Litlu-Brekku, Garðar og Vignir að reyna að handsama Hildi, 2 vetra hryssu undan Sámi og Hrifningu. Það hafðist fyrir rest !

20.04.2007

Hrifning frá Litlu-Brekku var sýnd á kynbótasýningu í Herning í Danmörku í dag og hlaut mjög góðan dóm. Fyrir byggingu: 7,78 og fyrir hæfileika 8,41, aðaleinkunn: 8,16. Hæfileikar skiptust þannig: Tölt: 8,5 - brokk: 8,0 - skeið: 8,5 - stökk: 8,5 - vilji og geðslag: 8,5 - fegurð í reið: 8,5 - fet: 7,5 - hægt tölt: 8,0 - hægt stökk: 8,0. Knapi var Daníel Jónsson. Hrifning er undan Ægi frá Móbergi og Hremmsu frá Borgarhóli. Ánægjulegt að fyrsta afkvæmi Hremmsu skuli reynast svona vel. Við óskum eigendum hryssunnar í Danaveldi innilega til hamingju með árangurinn!

03.03.2007
     
Það gengur ekki alltaf eins og maður ætlar.  Hér lentum við í kröppum dansi á heimreiðinni að Þrastarhóli í Arnarneshreppi en bíllinn rann aftur á bak í hálkunni og fimm hestar í kerrunni.  Hestarnir sluppu nokkuð vel og má segja að betur hafi farið en á horfðist!

03.03.2007
Sámur frá Litlu-Brekku  Þráinn frá Þinghóli
Keppni á Mývatn open.  Þráinn frá Þinghóli keppti í tölti og náði 6,50.  Einnig fór Sámur frá Litlu-Brekku í stóðhestakynningu. 

 

01.03.2007

Vefurinn opnaður. 

  icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse  icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse  icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse icelandic horse icelandic horses islands hest gelding stallion hingst icelandic horse álfur frá selfossi álfur frá selfossi álfur frá selfossi álfur frá selfossiálfur frá selfossi álfur frá selfossiálfur frá selfossi álfur frá selfossi


Senda póst
til okkar



 

 

     

 

Litla-Brekka, Arnarneshreppi, Eyjafirði - IS601 Akureyri, Iceland Tel. +354 461-4933 Mobil. +354 896-1838
Vefstjórar: Vignir og Jónína
Vefhönnun:  Anna Guðrún Grétarsdóttir